pokercasinosports

Hvernig á að spila Premium Blackjack

Premium er afbrigði af net-blackjack sem gefur þér betri líkur á að vinna en í sumum öðrum útgáfum af leiknum, af því aðeins fjórir stokkar eru notaðir. Spilaðu um alvöru peninga eða ókeypis!

Leikreglur

Ólíkt sumum öðrum blackjack-leikjum eru fjórir 52 spila stokkar stokkaðir saman og gefnir í upphafi hverrar handar.

Gjafararinn fær ekki holuspil. Gjafarinn verður að taka spil í öllum samtals útgáfum af 16 eða undir og standa á öllum 17( þar á meðal á mjúkum 17, hönd sem er með ás sem er samtals annað hvort sjö eða 17). Ef þú skildir hitta á blackjack þá færðu greitt eftir 3:2 líkum.

Fleiri boðmöguleikar verða í boði eftir því sem líður á höndina. Til dæmis geta spilarar tvöfaldað (e. double down) á hvaða tveggja-spila hönd sem er. Það þýðir að þú getur tvöfaldað upprunalega boðið þitt, svo framarlega sem þú sért tilbúinn að „standa“ eftir að hafa fengið aðeins eitt spil í viðbót frá gjafaranum.

Spilarar geta líka splittað tveimur spilum ef þau eru par eða jafnhá. Svo ef þú færð gefna áttu-áttu, tvist-tvist, kóng-gosa, drottningu-tíu, eða aðrar sambærilegar samsetningar, þá geturðu búið til tvær hendur til þess að leggja aukalega undir á þær sömu upphæð. Hér eru nokkrar aðrar reglur um að splitta:

  • Þú mátt splitta tvisvar í þrjár hendur samtals
  • Ásum má endursplitta einu sinni og þeir fá bara eitt spil í viðbót á hverja splitthönd
  • Þú mátt tvöfalda á hvaða tveggja-spila hönd sem er, þar á meðal eftir splittaða hönd sem var ekki ásapar.

Trygging og uppgjöf

Spilarar hafa ekki heimild til að gefast upp (e. surrender) í Premium. En ef þú heldur að gjafarinn sé að fara hitta á blackjack, þá geturðu keypt tryggingu. Þetta þýðir að ef gjafarinn skyldi svo hitta á blackjack, að þú fáir greitt 2:1 á boðið þitt.

Fræðilegt vinningshlutfall spilara (e. return to player - RTP) í Premium blackjack er 99,67%.