pokercasinosports

Hvernig á að spila Live 3 Card Brag

Breskur leikur sem á ættir að rekja meira en fimmhundruð ár aftur í tímann, en 3 Card Brag er spilaður í Bretlandi og um allan heim enn í dag. Alþjóðleg afbrigði leiksins eru meðal annars faras og teen patti, mjög vinsæll kortspilaleikur í Indlandi og nærliggjandi löndum.

Á borðunum okkar í Live Casino geturðu reynt þig í leik gegn lifandi atvinnugjöfurunum okkar í hröðu afbrigði af þessum sígilda kortspilaleik.

Live 3 Card Brag – Grunnreglur

Til að byrja með verða spilarar að leggja út forfjárboðið sitt (e. ante bet) sem og valkvæð Pair Plus og Poker Plus hliðarboð (e. side bets). Á þessum tímapunkti fá bæði spilarinn og gjafarinn þrjú spil, en hönd gjafarans snýr niður á grúfu.

Spilarar geta nú valið af halda áfram að leggja undir aukaleg spilaboð (e. Play bet) sem eru jafnhá forfjárborðinu, eða pakkað og gefið frá sér forfjárboðið. Spilarar eiga möguleika á að gera blindspilaboð (e. Blind Play bet), þar sem þeir velja sjálfkrafa að spila hverja hönd.

Ef spilarinn heldur áfram þá snýr gjafarinn spilunum sínum upp í loft. Ef gjafarinn hefur ekki náð að mynda gilda hönd - drottningu hæst eða betra - þá vinnur spilarinn óháð því hvaða hönd hann er með. Forfjárboðið (e. ante bet) fær jafna peningaútborgun upp á 1:1 og spilaboðinu (e. Play bet) verður skilað.

Ef gjafarinn nær gildri hönd eru hendur spilarans og gjafarans bornar saman. Ef spilarinn vinnur fær hann jafna peningaútborgun upp á 1:1 á bæði forfjárboðið og spilaboðið sitt. Ef gjafarinn vinnur eru öll boðin tekin. Ef höndin er jöfn verður báðum boðum skilað til spilarans.

Brag-leikir eru nátengdir póker og notast við svipaða handaröðun, með nokkrum undantekningum þó. Þrjú eins (þrenna, kallast líka Prial) er besta mögulega höndin í 3 Card Brag og vinnur litaröð (e. straight flush). Röð (e. straight) vinnur líka lit (e. flush) í 3 Card Brag. Smelltu hér til að sjá nánari lýsingu á pókerhöndum.

Fræðilegt vinningshlutfall spilara (return to player - RTP) í Live 3 Card Brag er 98,00%.

Bónusboð

Í hverri hönd eiga spilarar möguleika á að leggja út Pair Plus-boð og eftir að forféð hefur verið lagt út þá Poker Plus-boð.

Pair Plus-boðið er greitt út ef þrjú spilin þín innihalda eitt par eða betra, samkvæmt töflunni hér fyrir neðan:

HöndÚtborgun
Prial (þrenna, þrjú eins) 40:1
Litaröð 30:1
Röð 6:1
Litur 4:1
Par 1:1

Poker Plus-boðið notar þrjú spil spilarans og þrjú spil gjafarans til að mynda bestu fimm spila pókerhöndina. Ef höndin er gild þá verður boðið greitt út samkvæmt töflunni hér fyrir neðan:

HöndÚtborgun
Konungleg litaröð 1.000:1
Litaröð 200:1
Fjögur eins (ferna) 100:1
Fullt hús 20:1
Litur 15:1
Röð 10:1
Þrjú eins (þrenna) 7:1

Fræðilegt vinningshlutfall spilara (RTP) fyrir Pair Plus-boðið er 97,86% og fræðilegt vinningshlutfall spilara (RTP) fyrir Poker Plus-boðið er 91,44%. Fræðilegt vinningshlutfall spilara (RTP) fyrir Blind Play (blindspilunareiginleikann) er 96,18%.

Hvernig á að spila Live 3 Card Brag

Live 3 Card Brag er í boði í Live Casino hjá okkur allan sólarhringinn. Þú getur spilað á vefnum í gegnum iOS og Android snjalltækin þín.