Á borðunum okkar í Live Blackjack siturðu á móti raunverulegum gjöfurum, spilandi með alvöru spil. Láttu reyna á kunnáttuna gegn atvinnugjöfurum í þessum sígilda leik spilahallanna um taugar og spennu, og lyftu svo leiknum á hærra plan með einstöku möguleikunum okkar á að veðja eftir á (e. bet behind) eða leggja undir til hliðar.
Live Casino býður þér að spila í ýmsum upphæðum í Live Blackjack. Hvert borð notar átta 52 spila stokka, stokkaða saman í skó og endurstokkaða öðru hverju.
Öll box sem er spilað í fá gefin tvö spil sem snúa upp. Gjafarinn fær eitt holuspil og eitt sem snýr upp og gáir hvort hann sé með blackjack - ef gjafarinn sýnir ás geta spilarar keypt tryggingu (e. insurance), sem er greidd út á 2:1 ef gjafarinn hittir svo á blackjack. Spilarar sem hitta blackjack fá greitt út á líkunum 3:2.
Gjafarar verða að standa á 17 eða hærra, þar á meðal á mjúkum 17 (hönd með ás sem er samtals 17 eða 7).
Eftir því sem höndin spilast lengra getur opnast fyrir fleiri möguleika. Spilarar geta tvöfaldað á hvaða tveggja spila hönd sem er, sem þýðir að upphaflega boðið er tvöfaldað, svo framarlega sem þú ert tilbúinn að standa eftir að fá bara eitt spil gefið í viðbót.
Pöruðum tveggja spila höndum (t.d. 8-8, 2-2, kóngur-gosi, drottning-tía, o.s.frv.) má splitta til að búa til tvær hendur fyrir aukaveðmál upp á sömu upphæð. Spilarar geta splittað einu sinni í samtals tvær hendur og splittað ásum til að fá bara eitt spil í viðbót á hvora hönd.
Möguleikinn á að „gefast upp“ (e. surrender) er ekki leyfður í Live Blackjack.
Til að læra nánar um hvernig á að spila leikin, kíktu þá á síðuna okkar um reglur í blackjack.
Live Blackjack-borðin okkar eru í gangi allan sólarhringinn. Ákveðin borð bjóða upp á sérstaka möguleika, þar á meðal einkaborð (aðeins í boði fyrir spilarana okkar), þjónustu á ensku eða þýsku, möguleikann á að veðja eftir á (e. bet behind) og ýmis síðuboð/hliðarveðmál.
Sum Live Blackjack-borð leyfa spilurum að veðja eftir á (e. bet behind) á hvaða sæti sem er við borðið - annað hvort á meðan beðið er eftir opnu sæti, eða ef spilari vill bara hafa meira að gera.
Perfect Pairs™ er valfrjálst boð sem er í boði á öllum Live Blackjack-borðum og þar býðst spilurum að leggja undir aukaboð upp á hvort spilin þeirra verði par eða ekki. Það eru þrjár tegundir af pörum í boði, allt eftir því hvort bæði númeraröðin og sortin, litagerð, eða bara númeraröðin sé eins á báðum spilum. Þessi borga svo út á eftirfarandi líkum:
Veðmál | Stuðull |
---|---|
Perfect Pair (eins sort, t.d. 9s-9s, Ah-Ah) | 25:1 |
Par í lit (litirnir eru eins, t.d. 7c-7c, Qh-Qd) | 12:1 |
Blönduð pör (bara af sömu númeraröð, t.d. 6s-6d, Kc-Kh) | 6:1 |
21+3™ boð eru valfrjáls aukaboð sem byggjast á tveim eigin spilum spilarans ásamt spili gjafarans sem snýr upp í loft. Þessi borga út á eftirfarandi hátt:
Veðmál | Stuðull |
---|---|
Þrenna í sort (t.d. Qs-Qs-Qs) | 100:1 |
Litaröð (t.d. 7d-8d-9d) | 40:1 |
Þrenna (t.d. 3d-3h-3s) | 30:1 |
Röð (t.d. 9c-10d-Jh) | 10:1 |
Litur/sort (t.d. 2h-6h-10h) | 5:1 |
Til að fá nánari upplýsingar um hvernig á að spila leikin, kíktu þá á síðuna okkar um reglur í blackjack.