pokercasinosports

Hvernig á að spila Mini Baccarat

Með bættri hönnun og nýjum háskerpumyndavélum geturðu notið ítarlegustu upplifunarinnar í Live Mini Baccarat sem til er.

Live Mini Baccarat (kotra) er einfaldur leikur að spila en hver hönd færir þér einstaka spennu og tækifæri til að hámarka vinningana þína með hliðarboðum. Njóttu spennunnar og glamúrsins sem fylgir því að spila Live Mini Baccarat í raunverulegri spilahöll – hvar sem þú ert.

Live Mini Baccarat - Grunnreglur

Markmið Baccarat er einfaldlega að fá hönd með samtals stigum sem eru sem næst níu. Ásar teljast sem einn, töluspilin tveir til níu eru gildin sem á þeim standa og tíur og myndaspil teljast sem núll.

Ef virði handarinnar er umfram tíu stig þá dregurðu tíu stig frá til að fá út lokastigagildi Baccarat-handarinnar. Til dæmis, 7+6=13=3 og 4+6=10=0.

Fyrir hverja umferð veðjar þú á hönd Bankarans (e. Banker), á þína hönd eða á jafntefli. Þú og Bankarinn fáið svo hvor gefin tvö spil í hönd. Í sumum tilvikum er þriðja spilið gefið til spilarans eða Bankarans eða beggja (reglur um þriðja spil – sjá neðar). Spil eru gefin úr skónum sem heldur átta spilastokkum.

Spilarinn sem er næst níu vinnur.

Ef þú býður (e. bet) á höndina þína og vinnur færðu greitt út 2 á móti 1 vinning á boðið þitt.

Ef þú býður á Bankarann og Bankarinn vinnur, færðu greitt 2 á móti 1 mínus 5% umboðslaun banka (vísað til sem vigorish).

Ef bæði höndin þín og Bankarans eru með jafnmörg stig í heildina er niðurstaða leiksins jafntefli (e. tie). Ef þú lagðir út boð í jafnteflisreitinn (e. tie) færðu greitt 8/1.

Skoðaðu neðsta hluta þessarar síðu til að sjá fræðilegt vinningshlutfall spilara (e. theoretical return to player - RTP) fyrir Live Mini Baccarat.

Útborganir í Live Mini Baccarat

Tegund boðsÚtborgun
Bankari 2:1
Spilari 2:1 mínus 5%
Jafnt 8:1

Reglur um þriðja spil

Eftirfarandi regluyfirlit Baccarat gildir þegar spilari og/eða Bankarinn fá sjálfkrafa gefið þriðja spilið í leiknum:

Spilari:

Stigagildi fyrir fyrstu tvö spilin 
0-1-2-3-4-5 Dregur spil.
6-7 Stendur.
8-9 „Náttúruleg hönd“, ekki meira dregið.

Ef spilari stendur þá dregur Bankarinn á samtals fimm eða lægra. Ef spilari dregur, notaðu þá töfluna hér fyrir neðan til að sjá hvort Bankari dregur eða stendur.

Bankari:

Stigagildi fyrir fyrstu tvö spilinDregur þegar þriðja spil spilarans er:Dregur ekki þegar þriðja spil spilarans er:
0-1-2 Dregur alltaf spil.  
3 0-1-2-3-4-5-6-7-9 8
4 2-3-4-5-6-7 0-1-8-9
5 4-5-6-7 0-1-2-3-8-9
6 6-7 0-1-2-3-4-5-8-9
7 Stendur alltaf.  
8-9 Spilari getur ekki dregið. Spilari getur ekki dregið.

Mikilvægt: Ef annað hvort spilari og/eða Bankari eru samtals með átta eða níu þá standa þeir báðir. Þessi regla gildir umfram allar aðrar reglur.

Hliðarboð

Til viðbótar við boð á spilara, Bankara eða jafntefli (e. Tie), er hægt að leggja út hliðarboð (e. side bets).

Reglurnar fyrir hliðarboð eru eftirfarandi:

  • Hliðarboðin Player Pair, Banker Pair og Either Pair vinna ef fyrstu tvö spilin sem eru dregin af spilaranum mynda par með tilheyrandi stöðu.
  • Perfect Pair hliðarboð vinnur ef fyrstu tvö spil spilara eða Bankara mynda par í sömu sort (s. suit). Til dæmis, par af sjö í tígli.
  • Big-hliðarboð vinnur ef heildarfjöldi spila sem er gefinn til spilara og Bankara er fimm eða sex.
  • Small-hliðarboð vinnur ef heildarfjöldi spila sem er gefinn til spilara og Bankara er fjórir

Hliðarboð tengjast ekki boðum í aðalleiknum. Þú getur, til dæmis, boðið á aðalstöðu spilara og Banker Pair-hliðarboð og svo öfugt.

Útborganir fyrir hliðarboð í Baccarat

Tegund hliðarboðsÚtborgun
Player Pair 11:1
Banker Pair 11:1
Perfect Pair 25:1
Either Pair 5:1
Big 0,54:1
Small 3:2

Egalite Extra-hliðarboð

Egalite Extra er hliðarboð sem leyfir þér að bjóða að hendur spilarans og Bankarans muni mynda tiltekið jafntefli (e. Tie) með jafnri niðurstöðutölu.

  • Boðið vinnur ef niðurstaða handarinnar endar í jafntefli með nákvæmlega sama tiltekna skori. Ef úrslit handarinnar eru ekki jafntefli, eða jafntefli annarra úrslita, eru öll Egalite Extra-boð töpuð.
  • Það er hægt að leggja út boð á Egalite Extra-boðstöðu án þess að leggja út aðalboð.
  • Spilari getur valið að leggja út eitt eða fleiri boð á tiltekið skor jafnra handa sem eru í boði í Egalite Extra-hliðarboðum.

Útborganir úr Egalite Extra-hliðarboðum

Stök jafntefli (e. Individual Egalites)Útborgun
0 150:1
1 215:1
2 220:1
3 200:1
4 120:1
5 110:1
6 45:1
7 45:1
8 80:1
9 80:1

Vinningshlutföll leiks

Fræðilegt vinningshlutfall spilara (e. theoretical percentage return to player - RTP) í Live Mini Baccarat er misjafnt á milli boðtegunda (e. bet types):

Tegund boðsVinningshlutfall
Bankari 98,94%
Spilari 98,76%
Jafnt 85,64%
Hliðarboð: 
Player Pair/Banker Pair 89,64%
Perfect Pair 86,67%
Either Pair 86,29%
Big 95,65%
Small 94,72%
Egalite Extra 87,55-93,61%

Kíktu hér til að skoða fleiri leiki í Casino.

Hafðu samband við þjónustuborð ef þú hefur einhverjar spurningar um hvernig þú spilar Live Mini Baccarat.