pokercasinosports

Reglur í Live Roulette

Hún þekkist hvar sem er og er alltaf full af fjöri en borð í lifandi rúllettu Roulette er þungamiðjan í öllum landliggjandi spilahöllum, umkringd spilurum sem eru að leggja undir í von um að vinna þann stóra. Kynntu þér allt sem þú þarft að vita um hvernig þú nýtur þín í þessum sígilda leik spilahallanna.

Leikurinn og reglur leiksins

Live Casino býður upp á leikinn European Roulette, þar sem notað er hjól með 37 vösum sem eru númeraðir frá núll til 36. Þetta afbrigði af rúllettu býður betri líkur en borð með fleiri vösum (t.d. amerísk rúlletta, sem bæði er með einfalt núll og tvöfalt núll).

Þú ert ekki takmarkaður við að leggja bara undir á eitt númer og þú getur lagt undir ýmis samsett veðmál, á einstakar tölur eða töluhópa. Þetta gerist allt á þeim enda borðsins sem kallast innri hlutinn (e. inside section).

Hinn svokallaði ytri hluti (e. outside section) býður einnig upp á ýmis pör veðmála, sem hvert nær yfir 18 tölur. Þessi innihalda háar/lágar tölur, sléttar/odda, og rauðar/svartar.

Það eru líka sex 12 númera veðmál - þekkt sem dálka- og tylftaveðmál - sem og nokkur 17 tölu veðmál á ýmsa hluta rúllettuborðsins.

Til að læra meira um hvernig þú spilar leikinn, sem og á alla ólíku möguleikana til að leggja undir á rúllettuborðið, skaltu vinsamlegast kíkja á síðuna okkar um rúllettureglur.

Tegundir borða

Borðin okkar í Live Roulette eru í gangi allan sólarhringinn. Borðategundir eru m.a. Private Roulette (aðeins fyrir spilarana okkar), Auto/Slingshot Roulette (þar sem boltanum er skotið sjálfvirkt inn í hjólið), Immersive Roulette (þar sem fjölmargar myndvélar og hægar myndklippur ná að sýna þér hvert einasta skopp og hopp kúlunnar í háskerpu) og svo hefðbundin European Roulette með lifandi gjöfurum/croupierum.