pokercasinosports

Hvernig á að spila Live Spin a Win

Slástu í för með lifandi gestgjafanum þínum og veldu hvar þú heldur að hjólið stöðvist í þessum spennandi gagnvirka leikjaþætti sem er alltaf tilbúinn á sama tíma og þú!

Hliðarboð (e. side bets) eins og odda (e. Odd), slétt (e. Even) og margfaldari (e. Multiplier) gefa þér enn fleiri tækifæri til að vinna í hverjum snúningi. Farðu í anddyri Live Casino núna og kynntu þér allt um málið.

Live Spin a Win – Grunnreglur

Hjólinu er skipt upp í 54 jafnstóra hluta, merktir 1, 2, 5, 10, 20, 40, x2 eða x7. Spilarar leggja út boð (e. bet) á þann hluta sem þeir halda að hjólið stöðvist á – vinningshlutinn er táknaður með vísi efst á hjólinu þegar snúningur þess stöðvast.

Vinningsboð á númeraða hluta eru greiddir út samkvæmt tölunni, t.d. vinningstala 5 greiðir út 5 á móti 1 (6,00), vinningstala 10 greiðir út 10 á móti 1 (11,00), o.s.frv. Ef x2 eða x7 margfaldari kemur upp er hjólinu snúið aftur þar til vinningstala er staðfest. Sú tala verður margfölduð með x2 eða x7, allt eftir því á hvaða margfaldara hjólið lenti, til að ákvarða útborgunarupphæðina.

Hliðarboð (e. Side Bets)

Spilarar mega leggja undir hliðarboð til viðbótar við aðalboð á hjólið, eða geta valið að leggja aðeins undir hliðarboð.

  • Odda (e. Odd): úrslitin verða 1 eða 5
  • Slétt (e. Even): úrslitin verða 2, 10, 20 eða 40
  • Margfaldari (e. Multiplier): úrslitin verða x2 margfaldari eða x7 margfaldari

Bæði odda og slétt hliðarboð tapa ef úrslitin eru margfaldari.

Upplýsingar um útborgun

Hluti hjólsinsÚtborgun
1 1:1 (Slétt)
2 2:1
5 5:1
10 10:1
20 20:1
40 40:1

 

Tegund boðsÚtborgun
Margfaldari x2 Staða greidd út x2
Margfaldari x7 Staða greidd út x7
Odda hliðarboð x0,75
Slétt hliðarboð x1,25
Margfaldari hliðarboð 25:1

Fræðilegt vinningshlutfall spilara (return to player - RTP) í Live Spin a Win er 97,22%.

Hvernig á að byrja að spila Live Spin a Win

Opnaðu Casino á vefnum eða í gegnum snjalltækjaappið til að fara í Live Casino-leiki og finndu þar Live Spin a Win.

Þegar þú færð merki um slíkt geturðu lagt undir öll boðin þín fyrir næsta snúning. Eftir að þú hefur lagt boðin þín út snýr gestgjafinn hjólinu.