Rúlletta hefur verið spilað í einhvers konar útgáfu í aldaraðir. Hið víðfræga hjól er talið að hafi upprunalega haft allt niður í 31 tölu, þó að það innihaldi nú venjulega annað hvort 37 (í Evrópu) eða 38 (í Bandaríkjunum), sem þýðir að líkurnar á árangri eru misjafnar allt eftir því hvaða afbrigði þú ert að spila. Þróun leiksins hefur svo gert það að verkum að það er nú einn þekktasti þátturinn í nútíma spilahöllum um allan heim.
Hjólið í evrópskri rúllettu er með 37 vasa, númeraða frá núlli og upp í 36. Þetta þýðir að spilurum er boðið upp á betri líkur en á öðrum rúllettuborðum, eins og því ameríska, sem eru með fleiri vasa.
Tveir aðalhlutar borðsins þar sem veðmálin eru lögð undir eru „innri hlutinn“ og „ytri hlutinn“. Hvor hluti býður upp á margar ólíkar leiðir til að leggja undir.
Innri hlutinn býður upp á veðmál (e. bet) á einstakar tölur sem eru nálægar hverri annarri á útliti borðsins, eða upp á talnahópa upp í sex tölur.
Ytri hlutinn inniheldur veðmál í pörum fyrir rauðar og svartar tölur, háar eða lágar og jafnar eða sléttar (en hvert þessara nær yfir 18 tölur). Þú getur líka lagt undir á sex ólíkar 12-tölur (þrjú þessara veðmála eru kölluð dálkar og þrjú kölluð tylftir (e. column & dozen bet)).
Þessu til viðbótar eru hópar veðmála sem innihalda sjö til 17 tölur, staðsettar á ólíkum hlutum hjólsins. Þetta er allt hægt að veðja á með einum einföldum smelli á brautina (e. racetrack), þann hluta rúllettuborðsins sem líkist hjólinu sjálfu og í þeirri röð sem númerin er sýnd, frekar en í númeraröð eða á aðal veðfletinum (e. main betting layout).
Eftir að hafa sest við borð þarf hver spilari að velja lit á spilapeningana sem hann vill nota á meðan spilalotan hans stendur yfir. Þú getur svo á einfaldan hátt valið verðmæti spilapeninganna sem þú notar til að leggja undir og breytt tölunni sem þú notar í hvert sinn á hverjum veðfleti fyrir sig.
Við höldum sjálfkrafa utan um allar upphæðirnar sem eru lagðar undir og ekki er hægt að leggja undir nein veðmál sem eru undir lágmarki borðsins. Ef upphæðin sem þú hefur valið er undir lágmarkinu sem má leggja undir, mun fyrsti smellurinn sem þú smellir á borðið leggja út fyrir þig lágmarksveðmál.
Þegar þú leggur undir á innri og ytri fleti getur þú lagt undir á hvaða tölu eða samsetningu talna sem er. Mundu að hvert veðmál á ytri hlutanum verður að vera að lágmarki sú upphæð sem er lágmark borðsins; sama regla gildir svo um heildarupphæðina sem er lögð undir á innri hlutanum. Mundu líka að hvert veðmál er algjörlega óháð öðru, þegar kemur að lágmarki borðsins.
Fyrir hvert veðmál sem vinnur er upphaflega veðmálið sem þú lagðir undir greitt aftur á reikninginn þinn, plús útborgunin sem þúfærð miðað við upphæð bitans (e. stake) og eftir borðlíkunum (e. table odds - skráð hér neðan) Veðmál sem tapar er tapað fé.
Hugbúnaðurinn ber sjálfkrafa kennsl á að veðmál á innri hluta leggjast saman, svo að hægt er að leggja veðmál á innri hlutann þar til lágmarki borðsins er náð. Ef það næst ekki verða veðmál sem eru undir lágmarkinu fjarlægð þegar hjólinu er snúið (eftir að tíminn á veðklukkunni klárast).
Þegar þú spilar á fjölspilaraborði geta öll veðmál annað hvort unnið eða tapað eftir að tíminn til að leggja undir veðmál er liðinn. Á einspilaraborðum munu veðmál ekki verða tekin til greina sem virk fyrr en búið er að staðfesta þau og búið er að smella á Spin hnappinn.
Útborgun á innri veðmál – Rúlletta | ||
---|---|---|
Nafn veðmáls | Tölur undir | Líkindi á útborgun |
Beint upp | 1 | 35 á móti 1 |
Splitta (e. Split) | 2 | 17 á móti 1 |
Stræti | 3 | 11 á móti 1 |
Horn | 4 | 8 á móti 1 |
Lína | 6 | 5 á móti 1 |
Útborgun á ytri veðmál – Rúlletta | ||
---|---|---|
Nafn veðmáls | Tölur undir | Líkindi á útborgun |
Rauð | 18 | 1 á móti 1 |
Svart | 18 | 1 á móti 1 |
Odda | 18 | 1 á móti 1 |
Slétt | 18 | 1 á móti 1 |
Lágt (1-18) | 18 | 1 á móti 1 |
Hátt (19-36) | 18 | 1 á móti 1 |
1., 2. eða 3. tylft | 12 | 2 á móti 1 |
1., 2. eða 3. dálkur | 12 | 2 á móti 1 |
Til viðbótar við innri og ytri hlutana er líka hægt að leggja undir á brautarhluta (e. racetrack) borðsins. Þessi hluti rúllettuborðsins er lagður upp þannig að hann sýnir raunverulega röð talnanna eins og þær eru á hjólinu sjálfu. Smelltu á eina töluna til að setja spilapeninga þar, plús á nærliggjandi tölur til beggja hliða (líka kallað nágrannar).
Brautina er líka hægt að nota til að leggja undir fernskonar önnur sérstök veðmál, sem hvert leggur sjálfkrafa undir spilapeninga á fleiri staði á borðið, eins og er sýnt í töflunni hér á eftir.
Nafn veðmáls | Kostnaður í spilapeningum | Tölur undir | Dreifing |
---|---|---|---|
Voisins du Zero | Níu spilapeningar | 17 | 0/2/3 (tveir spilapen.), 4/7, 12/15, 18/21, 19/22, 25/26/28/29 (tveir spilapen.), 32/35 |
Tiers du Cylindre | Sex spilapeningar | 12 | 5/8, 10/11, 13/16, 23/24, 27/30, 33/36 |
Orphelins en Plein | Átta spilapeningar | 8 | 1, 6, 9, 14, 17, 20, 31, 34 |
Zero (núll) | Fjórir spilapeningar | 7 | 0/3, 12/15, 26, 32/35 |
Hægt er að leggja undir hliðstæð tveggja tölu veðmál (splitt) af sama lit á aðalfletinum (þ.e. rautt eða svart) í einni hreyfingu með því að nota takkana fyrir splittveðmál sem eru nálægt brautarhluta borðsins
Rautt splitt (fjögur veðmál) | Svart splitt (sjö veðmál) |
---|---|
9/12 | 8/11 |
16/19 | 10/11 |
18/21 | 10/13 |
27/30 | 17/20 |
26/29 | |
28/29 | |
28/31 |
Samkvæmt venju í flestum nýrri spilahöllum um allan heim eru ýmis konar takmörk á veðmál á rúllettuborðum, allt eftir því hvort þau ná yfir veðmál á inni eða ytri hluta borðanna.
Hámarkið á veðmál á ytri hluta sem er sýnt við hvert borð sýnir hæstu upphæðina sem er hægt að setja undir á hvern og einn (eða alla) ytri hluta veðsvæðisins. Það er ekkert samtals hámarksveðmál.
Hámark veðmála á innri hlutanum vísar svo til upphæðarinnar sem er leyfilegt að setja undir á hverja einstöku tölu (eða beint up/straight-up).
Allar aðrar gerðir veðmála á innri hluta (t.d. splitt, lína, stræti o.þ.h.) eru hvert fyrir sig með sitt eigið hámarksveðmál, sem er í hlutfalli við hámarkið á beint hámark borðsins. Almenna reglan er að því fleiri tölur sem veðmál þekur, því hærri eru takmörkin. Til dæmis, Straight Up-veðmál (beint upp) þekur eina tölu og hámarksveðmál gæti verið 25 spilapeningar. Splittveðmál þekur tvær tölur og tvöfaldar því leyft hámark (50 spilapeningar). Strætisveðmál þekur þrjár tölur og í þessu dæmi væri hámarksveðmáliðð þá 75 spilapeningar o.s.frv.
Á borði með að hámarki 25 spilapeninga Straight Up-veðmáli er hægt að setja allt að 40 veðmál 25 spilapeninga á eða við tölu sem er í miðjudálkinum á borðinu, eins og t.d. 17 (eitt beint upp (1), fjögur splitt (8), eitt stræti (3), fjögur horn (16) og tvær sex-línur (12) veðmál), sem samtals gera þá 1.000 spilapeninga.
Fræðilegt vinningshlutfall spilara (RTP) fyrir rúllettu, evrópska rúllettu (e. European Roulette) og stórbokkarúllettu (e. High Roller Roulette) er 97,3%
RTP fyrir ameríska rúllettu (e. American Roulette) er 94,74%. RTP fyrir fimm línu veðmál (e. Five Line wager) í amerískri rúllettu er 92,11%.
Á einspilaraborðum er hægt að vista uppáhalds vemálin þín, svo þú getir á fljótlegan og þægilegan hátt gert tilteknar samsetningar af veðmálum. Veldu „Save Current Bet“ til að bæta því við eftirlætin þín Þú getur stjórnað vistuðum veðmálum í „My Bets“ valseðlinum.
Fjölspilaraborð bjóða þér og vinum þínum tækifæri á að spila saman og njóta spennunnar sem fylgir því að spila í félagsskap við aðra. Alveg eins og í raunverulegum spilahöllum í raunheimum þá breyta fjölspilaraborðin spilun á netinu í gagnvirka upplifun.
Þú getur líka spilað Live Roulette gegn raunverulegum gjöfurum í Live Casino hjá okkur. Athugaðu að Live Roulette hefur sínar eigin reglur - skoða fyrir nánari upplýsingar.