Casino Instant-bónus er leið til að spila leiki í Casino um raunverulega peninga.
Með því að spila í gildum Casino-leikjum geturðu breytt bónusupphæðinni þinni í peninga. Þú þarft að vinna þér inn tiltekinn fjölda af endurheimtarpunktum (e. redemption points) eða leggja undir tiltekinn fjölda af veðmálum.
Casino Instant-bónusa er hægt að fá greidda fyrir innlegg eða hleðslutilboð, eða sem verðlaun fyrir tilboð og kynningar. Casino Instant-bónusar eru veittir fyrir að spila suma eða alla Casino-leiki.
Ef Casino Instant-bónus er veittur fyrir innlegg myndar bónusupphæðin tiltekið hlutfall af bónuspakkanum og framlagðir fjármunir (e. Contributed Cash) mynda svo afganginn af bónuspakkanum.
Innistæðan í framlögðu upphæðinni er svo alltaf tiltæk til úttektar hvenær sem er. Ef þú hins vegar gerir það gefurðu frá þér eftirstöðvar bónusupphæðarinnar.
Ef þú hefur fengið Casino Instant-bónus án þess að hafa lagt neitt inn myndar bónusupphæðin 100% bónuspakkans.
Veðmál/boð sem hafa verið gerð og vinningar/töp af bónuspakkanum eru þá í sama hlutfalli og bónuspakkinn sjálfur. Til dæmis ef spilari fær bónuspakka fyrir 100% innleggstilboð, sem samanstendur af $50 í bónusupphæð og $50 af framlagðri upphæð:
Þessi spilari gerir veðmál/boð fyrir 10 með Casino Instant-bónusnum sínum, þar af eru teknir 5 af bónusupphæðinni og 5 eru teknir af framlagðri upphæð:
Þeir vinna 10 í þessu veðmáli/boði og innistæðan í bónusupphæðinni hækkar um 5. Innistæðan í framlagðri upphæð hækkar líka um 5.
Veðmál, vinningar og töp verða öll með sama hlutfall bónusupphæðar gagnvart framlagðri upphæð og er í bónuspakkanum sjálfum. Til dæmis ef spilari er með bónuspakka fyrir 20% hleðslutilboði á innlagða 100 inniheldur hann 100 í framlagðri upphæð og 20 í bónusfjármunum.
Í flestum tilvikum þarftu að vinna þér inn tiltekinn fjölda endurheimtarpunkta með því að spila í gildum leikjum með Casino Instant-bónusnum þínum.
Mismunandi leikir veita mismunandi fjölda af punktum. Þú getur kynnt þér nánar hversu marga punkta þú vinnur þér inn í Casino-leikjum með því að heimsækja síðuna okkar PokerStars Rewards.
Eftir að þú hefur staðist veðmálsskilyrðin er innistæðunni þinni í bónusupphæð skipt í peninga og bætt við raunpeningainnistæðuna þína ásamt framlögðu innistæðunni þinni.
Í þeim tilvikum þar sem er Casino Instant-bónus án þess að hluti hans sé framlögð upphæð (100% bónusupphæð) er allri bónusupphæðinni á þeim tíma sem bónusinn er kláraður skipt í peninga og bætt við raunpeningainnistæðuna þína um leið og veðmálsskilyrðin hafa verið uppfyllt.
Fjöldi endurheimtarpunkta sem þú þarft til að breyta Casino Instant-bónus í raunverulega peninga verður sýndur þegar bónusinn er boðinn, á borðunum í gildum Casino-leikjum, en upplýsingarnar verður hægt að skoða á vefnum, í tölvubiðlaranum eða snjalltækjaappinu í gegnum „My Rewards“ valseðilinn.
Þú finnur nánari upplýsingar þar, eins og um innistæðu framlagðrar upphæðar, gilda leiki og hvenær bónusar renna út (e. expiry dates).
Þú getur líka stýrt í hvaða röð hver Casino Instant-bónus er notaður, ef þú átt marga tiltæka bónusa – þú getur aðeins notað einn Casino Instant-bónus í einu. Eftir að þú hefur útleyst bónusinn, gert hlé á honum, gefist upp eða tapað fyrsta bónusnum þínum verður næsti Casino Instant-bónus sem þú átt sjálfkrafa í boði.
Valseðillinn „My Rewards“ gefur líka möguleika á að gefast upp á bónusnum þínum eða gera hlé á honum.
Með því að gera hlé á núverandi bónus er hann fjarlægður frá inneign sem þú átt tiltæka í gildum leikjum og frekari veðmál teljast ekki með upp í að útleysa hann. Þú getur valið að „halda áfram“ (e. resume) með bónus sem gert hefur verið hlé á hvenær sem er, fram að þeim tíma sem hann rennur út.
Ef þú gefst upp á bónuspakkanum (e. surrender) verður innistæðan þín í framlagðri upphæð strax tiltæk, en þú gefur þá frá þér tilkall til bónusupphæðarinnar. Ef bónusinn þinn samanstendur 100% af bónusupphæð og engri framlagðri upphæð verður bónusinn fjarlægður af reikningnum þínum.
Ef Casino Instant-bónus er í boði í ákveðnum leik verður innistæða sem er tiltæk í þeim leik sýnd með sameinaðri heildarupphæð raunpeningainneignarinnar þinnar, ásamt þeim Casino Instant-bónus sem hefur verið settur fremst í forgangsröðina.
Þegar veðmál er lagt undir verða fjármunir teknir hlutfallslega af tiltækri bónusupphæð og framlögðu upphæðinni sem er enn til staðar.
Ef innistæða í Casino Instant-bónus er undir þeirri upphæð sem þú vilt leggja undir þá mun afgangur innistæðunnar verða sameinaður þeim raunpeningafjármunum sem þú hefur gert tiltæka til veðmálsins.
Ef þú ert með einhverjar spurningar um Casino Instant-bónus skaltu vinsamlegast skoða Hjálparmiðstöðina.