GamCare, viðurkennd góðgerðarsamtök, eru leiðandi afl í að koma upplýsingum, ráðum og aðstoð á framfæri meðal þeirra sem vinna með félagsleg áhrif fjárhættuspila í Bretlandi.
GamCare er með fordómalausa nálgun á alla fjárhættuspilun. GamCare berst ekki fyrir því að takamarka valmöguleika og tækifæri þeirra sem reka eða taka þátt í fjárhættuspilum sem eru í boði á löglegan hátt og rekin á ábyrgan hátt.
Þau leggja mikla vinnu á sig við að þróa aðferðir sem:
GamCare býður upp á fjölbreytta ráðgjafarþjónustu og samskiptaleiðir fyrir þá sem glíma við vandamál tengd fjárhættuspilum. Einstaklingar geta fengið upplýsingar, ráð, stuðning og leiðbeiningar í gegnum hjálparlínuna í sínu landi, WhatsApp, ráðgjafarþjónustu, síma eða tölvupóst.
Hjálparsímanúmer fyrir allt landið - 0808 802 0133 (aðeins Bretland - í boði allan sólarhringinn)
Þetta er þjónusta bundin trúnaði og hún er í boði fyrir einstaklinga sem eiga við vandamál tengd fjárhættuspilum, eða fyrir ættingja, vini, vinnuveitendur o.fl., sem vilja fá upplýsingar, stuðning eða ráðgjöf í gegnum síma. Vinnufélagar eða aðrir þjónustuaðilar sem vinna með fólki með spilafíkn geta einnig hringt inn og fengið upplýsingar og ráð.
GamCare telur mikilvægt að bjóða upp á samtalsmeðferðir og ráðgjöf og býður þá þjónustu í skrifstofuhúsnæði sínu að 7-11 St. John’s Hill London SW11 1TR og í samstarfi við aðila um allt Bretland. Til að fá nánari upplýsingar þá skaltu vinsamlegast hafa samband við GamCare Helpline í síma 0808 802 0133 (eingöngu í Bretlandi - í boði allan sólarhringinn).
Þú getur einnig nálgast stuðning og ráðgjöf með því að koma á GamCare-spjallborðið þar sem jafningjar gefa ráð og stuðning, en spjallborðinu er stjórnað af ráðgjöfum GamCare.
Fyrir nánari upplýsingar um GamCare skaltu heimsækja heimasíðu GamCare.