Á PokerStars getur þú notið allra uppáhalds pókerleikjanna þinna með þúsundum annarra spilara – allan sólarhringinn. Þetta þýðir að þú getur alltaf gengið að fullum borðum vísum, í hvaða leik sem er, í um það bil hvaða upphæð sem er sem þú vilt spila.
Við bjóðum upp á flesta pókerleiki af öllum á netinu. Svo það er fullvíst að þú finnir spennandi, skemmtilegan pókerleik, hvort sem þú heldur upp á Hold’em, Stud, Draw eða fleiri.
Og ef þú ert nýr spilari segjum við þér allt sem þú þarft að vita til að geta byrjað. Smelltu á „Lesa meira“ á leikjunum hér fyrir neðan til að fá ítarlegar upplýsingar um reglur og um hvernig þú spilar.
Og ekki gleyma: það er sama hversu reynslumikill spilari þú ert, því ókeypis pókerskólinn okkar getur alltaf hjálpað þér að læra, æfa þig og bæta.
Hann er í boði með takmörkum, með pott-takmörkum og án takmarks en Texas Hold'em er leikurinn sem World Series-meistarinn okkar úr aðalviðburðinum, Chris Moneymaker, var að spila þegar hann vann krúnuna. Langsamlega vinsælasti leikurinn í pókerheiminum í dag, við bjóðum upp á mörghundruð borð í hringleik sem eru í gangi núna og mörghundruð mót í hverri viku.
PokerStars Tempest Hold'em er einstakt pókerfyrirkomulag, sem byggir á Texas Hold’em, með forfé (e. ante) sem hækkar þar til á hólminn (e. showdown) er komið, aukalegum blindum fyrir floppið og bara tveimur möguleikum fyrir alla spilara: allt inn eða pakka.
6+ Hold’em er vinsælt pókerfyrirkomulag með „stuttstokk“ (e. short deck) svipað Texas Hold’em, en með nokkrum spennandi frávikum. Öll spil sem eru lægri en 6 eru fjarlægð úr stokknum og allir leggja út forfé (e. ante) og aðeins sá sem situr við hnappinn leggur út blindfé. Í 6+ Hold‘em vinnur litur (e. flush) fullt hús og ás, 6, 7, 8, 9 er röð.
Showtime Hold’em spilast næstum alveg eins og Texas Hold‘em, með þeirri undantekningu að hver hönd sem spilari pakkar (e. fold) mun sitja upp í loft og er sýnileg það sem eftir er af höndinni. Þetta nær yfir öll spilin sem er pakkað fyrir og eftir floppið.
Omaha er svipaður Texas Hold’em á margan hátt, nema spilararnir fá fjögur holuspil og höndin verður að innihalda nákvæmlega tvö af holuspilum spilarans og nákvæmlega þrjú spil úr borðinu. (Í Texas Hold’em geta hendur innihaldið hvaða samsetningu sem er af spilum í borði og holuspilum.)
Omaha High er vinsælt pókerafbrigði í Evrópu, sérstaklega sem Pot Limit (e. potttakmark). PokerStars býður spilum sínum um allan heim upp á Omaha bæði í Limit og Pot Limit útgáfu.
Omaha Hi/Lo, eða Omaha Eight (spilað með „átta eða betra“ skilyrðingu fyrir lághönd), er í boði með takmarki, pott-takmarki og án takmarks.
Swap Hold’em er spennandi útgáfa af uppáhaldsleik heims í póker, Texas Hold’em. Þegar hann á að gera, eða á hvaða stigi handarinnar sem er, má hvaða spilari sem er skipta öðru eða báðum holuspilunum sínum fyrir ný, alveg ókeypis, einu sinni í hverri hönd.
Split Hold’em er nútímaleg útgáfa af hinum sígilda og gríðarvinsæla leik Texas Hold’em. Það sem gerir Split Hold’em ólíkan er að tvö algjörlega aðskilin borð eru gefin samtímis – tvö flopp, tvær fléttur og tvö fljót (e. flops, turns, rivers) – og sigurvegari hvors borðs fær hálfan pottinn.
5 Card Omaha og 5 Card Omaha Hi/Lo svipar á margan hátt til hefðbundinna Omaha-leikja, nema að fimmta holuspilið er gefið til hvers spilara fyrir floppið. 5 Card Omaha-leikir eru í boði á Pot Limit og No Limit borðum en Hi/Lo-leiki er hægt að spila á Limit, Pot Limit og No Limit borðum.
6 Card Omaha er eins og hefðbundnir Omaha-leikir, nema sex holuspil eru gefin til hvers spilara fyrir floppið. Leikir í 6 Card Omaha eru í boði Pot Limit-borðum.
Courchevel er spennandi afbrigði af 5 Card Omaha þar sem fyrsta spilið á floppinu er gefið upp í loft strax í upphafi handarinnar. Courchevel Hi/Lo er vinsælt afbrigði af „split pot“ Omaha póker þar sem hver spilari fær gefin fimm spil fyrir floppið. Þú getur spilað Courchevel og Courchevel Hi/Lo á Limit, Pot Limit og No Limit borðum á PokerStars.
Þar til gífurleg aukning varð í vinsældum Texas Hold’em, var Seven Card Stud vinsælast pókerleikurinn. Þú getur enn fundið fjölmarga möguleika á Seven Card Stud borðum á PokerStars, sem eru í boði með fjölbreyttum takmörkum.
Split-pott útgáfan af Seven Card Stud Hi/Lo býður upp á skemmtilegan snúning á þessum sígilda leik. Í boði með takmörkum, svo ef þér líkar Seven Card Stud eða Omaha Hi/Lo skaltu líka kíkja á Seven Card Stud Hi/Lo borðin.
Ef þér finnst þú aldrei ná í hönd er Razz leikurinn fyrir þig. Þessi útgáfa af sjö spila „lowball“ leik leyfir þér að miða á gjörsamlega verstu fimm spila pókerhöndina og samt vinna.
HORSE (Hold'em, Omaha, Razz, Seven Card Stud, Seven Card Stud Eight-or- Better) er samansafn leikja sem leyfa þér að sanna hversu fjölhæfur pókerspilari þú ert. Ef þér leiðist við að vera alltaf að spila einn leik þá skaltu prófa HORSE til að víkka kunnáttusviðið. Við bjóðum líka upp á 8-Game Mix, sem er sama kerfið og í HORSE, nema hann inniheldur líka umferðir af No Limit Hold’em, Pot Limit Omaha og 2-7 Triple Draw.
Five Card Draw er leikur sem margir ólust upp við að spila við eldhúsborðið. Þessi sígildi leikur færir þig aftur að rótum pókersins og kannski þénarðu smá peninga í leiðinni.
Tvistur til sjöa Triple Draw og tvistur til sjöa Single Draw eru lowball leikir sem neyða þig til að ná verstu mögulegu lágu höndinni. Í 2-7 leikjum eru aðrar reglur um hvernig lesið er úr höndunum, svo þú ættir að kynna þér þær áður en þú spilar.
Badugi er tegund af dragpóker (e. draw poker) þar sem markmið leiksins er að ná að mynda bestu lághöndina með mismunandi sortum, úr spilunum fjórum sem þú færð í gjöfinni. Í Badugi eru nokkrar áhugaverðar og frábrugðnar reglur m.v. í öðrum pókerleikjum, svo þú ættir að kynna þér reglurnar áður en þú spilar.
Þetta fyrirkomulag blandar saman þáttum úr Texas Hold‘em og Omaha. Þú byrjar með tvö holuspil (e. hole cards) og færð fleiri á meðan höndin er spiluð áfram. Ef þú spilar alla leið í gegnum fljótið (e. river) verðurðu kominn með fjögur holuspil og fimm sameignarspil sem þú getur notað til að mynda bestu fimm spila höndina.
Passaðu að kíkja á síðurnar okkar um reglur pókerleikja og styrkleikaröðun pókerhanda ef þú hefur einhverjar spurningar um hvernig einhverjir pókerleikjanna hér að ofan eru spilaðir.