5 Card Omaha Hi/Lo póker er spennandi leikur sem þróast hefur úr Omaha Hi/Lo. Hver spilari í 5 Card Omaha Hi/Lo fær gefin fimm einkaspil („holuspilin“) sem aðeins tilheyra þeim spilara sjálfum. Fimm sameignarspil eru svo gefin upp í loft og mynda „borðið“. Allir spilarar nota svo nákvæmlega tvö af sínum fimm holuspilum saman með nákvæmlega þremur spilum á borðinu, til þess að mynda bestu fimm spila pókerhöndina. Pottinum er skipt á milli bestu háu handarinnar og bestu lágu handarinnar - og þaðan kemur nafnið 5 Card Omaha Hi/Lo. Þú getur notað ólíkar samsetningar af spilunum þínum tveimur sem þú ert með á hendi til að mynda háu höndina og lágu höndina, en fyrir hvora hönd fyrir sig verður þú að nota nákvæmlega tvö spil af hendi og þrjú í borði - hvorki fleiri, né færri. Kítu á síðuna pókerhendur til að skoða styrkleikaröðun handa í 5 Card Omaha Hi/Lo.
5 Card Omaha Hi/Lo er spilaður með „8 eða betra“ skilyrði, sem þýðir að lága höndin verður að samanstanda úr fimm spilum sem eru röðuð átta eða lægra, til að eiga möguleika á að vinna lága hluta pottsins. Lághendur í 5 Card Omaha Hi/Lo ákvarðast á nákvæmlega sama hátt og þær gera í Omaha Hi/Lo. Ef það er engin hönd sem stenst skilyrðinguna vinnur háhöndin allan pottinn.
Í 5 Card Omaha Hi/Lo er notast við „ás til fimma“, eða „California“-kerfið til að styrkleikaraða lághöndum. Raðir (e. straights) og litur (e. flush) telja ekki á móti höndinni og ásar eru alltaf lægstir í lághönd, svo besta mögulega höndin er „hjól“: 5,4,3,2,A. Til að auðvelda þér að skilja röðun lághanda er eftirfarandi dæmum um lághendur sem standast skilyrðinguna (ekki tæmandi listi) styrkleikaraðað frá þeirri veikustu (#1, sem vinnur sjaldnast lághandarpottinn) til þeirrar sterkustu (#10, rærnar - „the nuts“):
Athugaðu að lághönd er alltaf raðað frá hæsta spilinu og niður. Sem dæmi, þá er hönd #9 þekkt sem „sexa lág“ (e. Six-low) af því að hæsta spilið er sexa. Hönd #5 er „sjöa lág“ og hönd #1 er „átta lág“. Á pókermáli gerir þú greinarmun á milli svipaðra lághanda með því að fara lengra niður í röðinni, þannig verður t.d. hönd #9 kölluð „sexa fjarki lág“, sem vinnur hönd #8 sem er „sexa fimma lág“.
Mundu einnig að raðir og litur vinna ekki á móti lághöndinni, svo þegar þú myndar lághönd sem stenst skilyrðinguna og hún er líka röð eða litur þá eru hún mjög sterk hönd og gæti mögulega unnið bæði lága og háa hluta pottsins, en það kallast að „skófla“ (e. scoop).
5 Card Omaha HI/Lo er hægt að spila með eftirfarandi fyrirkomulagi:
Í 5 Card Omaha Hi/Lo er notast við merki sem er kallað „hnappurinn“, „takkinn“, eða „gjafarahnappur“ og hann gefur til kynna hvaða spilari er eiginlegur gjafari í yfirstandandi leik. Áður en að leikur hefst, þá á spilarinn sem situr beint til vinstri við hnappinn að leggja út blindfé fyrir „litla blind“ - fyrsta skylduboðið. Spilarinn sem er svo beint réttsælis við litla blind póstar svo út „stóra blind“, en það er almennt tvisvar sinnum hærri upphæð en á litla blind, en blindféð getur svo verið misjafnt eftir því um hvers konar bita (e. stakes) og spilað og hver uppbygging boða (e. betting structure) er í spilinu.
Í leikjum með föstu-takmarki (e. Fixed Limit) er stóri blindur jafn hár og lítið boð og litli blindur er yfirleitt helmingurinn af upphæð stóra blinds, en gæti verið hærri í einhverjum bitum. Til dæmis, í leik sem er $2/$4 Fixed Limit, er litli blindur $1 og stóri blindur $2. Í leik sem er $15/$30 Fixed Limit, er litli blindur $10 og stóri blindur $15.
Í pott-takmarks (e. Pot Limit) og án-takmarks (e. No Limit) leikjum eru leikirnir nefndir eftir stærðum sem eru á blindum (t.d. $1/$2 5 Card Omaha Hi/Lo-leikur er með $1 fyrir litla blind og $2 fyrir stóra blind).
Eftir að hver spilari hefur fengið sín fimm holuspil ganga boðin/sögnin réttsælis um borðið, byrjað á spilaranum „við hlaupið“ (strax réttsælis frá stóra blind).
Eftir að hafa skoðað holuspilin sín á hver spilari möguleika á að spila höndina með því að jafna (e. call) eða hækka (.e. raise) boð stóra blinds. Sögnin (e. action) byrjar til vinstri við stóra blind, sem er talinn hafa úti lifandi boð í þessari lotu. Spilarinn á þá val um að pakka, jafna eða hækka. Til dæmis, ef stóri blindur var $2 myndi kosta $2 að jafna og a.m.k. $4 að hækka. Sögnin heldur svo áfram að ganga réttsælis um borðið.
Athugið: Uppbygging boða (e. betting structure) er mismunandi í ólíkum útgáfum af leiknum. Útskýringar á hvernig boð ganga fyrir sig í Limit 5 Card Omaha Hi/Lo, Pot Limit 5 Card Omaha Hi/Lo og No Limit 5 Card Omaha Hi/Lo er hægt að finna hér neðar.
Boð halda svo áfram í hverri boðlotu þar til allir spilarar sem eru með (sem hafa ekki pakkað (e. folded)) hafa lagt út jafn hátt boð í pottinn.
Eftir að fyrstu boðlotu er lokið er floppið gefið upp í loft í borð. Floppið er fyrstu þrjú sameignarspilin sem standa öllum spilurunum, sem enn eru með, til boða. Boðin byrja á fyrsta virka spilara strax réttsælis frá hnappnum. Önnur boðlota fer þá í gang. Í 5 Card Omaha Hi/Lo eru öll boð og hækkanir á floppinu í hlutföllum við litla boðið (e. small bet - t.d. $2 í leik sem er $2/$4).
Þegar boðlotunni er lokið fyrir floppið er fléttuspilið gefið upp í borðið. Fléttan er fjórða sameignarspilið í 5 Card Omaha Hi/Lo leik. Leikurinn hefst svo á fyrsta virka spilara strax réttsælis frá hnappnum. Önnur boðlota fer þá í gang. Í Limit 5 Card Omaha Hi/Lo þá eru öll boð og hækkanir á floppinu í hlutföllum við stóra boðið (e. big bet - t.d. $4 í leik sem er $2/$4).
Þegar boðlotunni er lokið fyrir fléttuna er fljótaspilið gefið upp í borðið. Fljótið (e. The River) er fimmta og síðasta sameignarspilið í 5 Card Omaha Hi/Lo leik. Boðin byrja á fyrsta virka spilara strax réttsælis frá hnappnum. Síðasta boðlotan fer þá fram.
Ef það eru fleiri en einn spilari eftir þegar síðustu boðlotunni er lokið á sá sem bauð eða hækkaði síðast að sýna spilin, nema ekkert hafi verið boðið í síðustu lotunni. Ef það gerist á spilarinn sem er fyrstur til vinstri frá hnappnum að sýna spilin sín fyrst. Spilarinn með bestu fimm spila háhöndina vinnur hálfan pottinn og spilarinn með bestu fimm spila lághöndina vinnur hinn helminginn af pottinum. Mundu, í 5 Card Omaha leikjum þurfa spilarar að nota tvö og aðeins tvö af sínum fimm holuspilum ásamt nákvæmlega þrjú af sameignarspilunum í borði. Ef það gerist að hendur séu jafn sterkar, verður háa og lága hlutanum af pottinum skipt jafnt á milli þeirra spilara sem eru með jafnbestu hendurnar. Ef það gerist að engin hönd stenst skilyrðinguna sem lághönd (þ.e. „átta eða betra“) þá vinnur besta háa höndin allan pottinn.
Eftir að potturinn hefur verið veittur sigurvegaranum er hægt að byrja að spila næsta leik af 5 Card Omaha Hi/Lo. Hnappurinn færist nú réttsælis á næsta spilara.
Reglur í 5 Card Omaha Hi/Lo eru þær sömu í Limit, Pot Limit og No Limit pókerleikjum, nema með örfáum undantekningum:
Í hugbúnaði PokerStars er ekki hægt að bjóða minna en lágmarkið, eða meira en hámarkið, hverju sinni. Boðstikan (e. bet slider) og boðglugginn leyfa þér bara að bjóða upphæðir sem eru leyfðar innan takmarka sem gilda í leiknum.
Ef þú þekkir ekki 5 Card Omaha Hi/Lo mælum við með því að þú prófir leikinn ókeypis fyrst, til að fá tilfinningu fyrir því hvernig leikurinn spilast. Þér er alltaf velkomið að spila á ókeypis pókerborðunum á PokerStars, svo þú getir fínpússað hæfileikana áður en þú byrjar að spila raunpeningapóker.
Að lokum, ef þú vilt spila einhverjar aðrar útgáfur af Hi/Lo leikjum þá mælum við með því að þú kíkir á Stud Hi/Lo eða Omaha Hi/Lo. Báðir leikirnir eru skemmtileg tilbreyting við hinn sívinsæla Texas Hold’em leik og þeir eru báðir í boði undir hlutanum um pókermót hjá okkur.
Til viðbótar við 5 Card Omaha Hi/Lo bjóðum við líka upp á mörg önnur pókerafbrigði. Skoðaðu síðuna okkar um pókerleiki til að kynna þér málið.