pokercasinosports
pokercasinosports

Courchevel póker

Courchevel póker er spennandi leikur sem þróast hefur úr Omaha. Hver spilari í Courchevel fær gefin fimm einkaspil („holuspilin“) sem aðeins tilheyra þeim spilara sjálfum. Fimm sameignarspil eru svo gefin upp í loft og mynda „borðið“. Allir spilarar nota svo nákvæmlega tvö af sínum fimm holuspilum saman með nákvæmlega þremur spilum á borðinu, til þess að mynda bestu fimm spila pókerhöndina. Kíktu á síðuna pókerhendur til að skoða styrkleikaröðun handa í Courchevel.

Courchevel er öðruvísi en 5 Card Omaha í því að fyrsta spilið á floppinu er gefið upp í loft í byrjun handarinnar, áður en boðlotan fyrir floppið sjálft hefst.

Afbrigði af Courchevel-leikjum

Courchevel er hægt að spila með eftirfarandi fyrirkomulagi:

  • Limit Courchevel - Ákveðin takmörk eru sett á boð (e. bet) í hverjum leik og í hverri boðlotu (e. betting round).
  • Pot Limit Courchevel - Boð (e. bets) takmarkast við upphæð spilapeninganna sem eru í pottinum.
  • No Limit Courchevel póker - Spilari getur boðið (e. bet) hvað sem er, upp að öllum spilapeningunum sem hann á.

Spilareglur í Courchevel

Í Courchevel er notast við merki sem er kallað „hnappurinn“, „takkinn“, eða „gjafarahnappur“ og hann gefur til kynna hvaða spilari er eiginlegur gjafari í yfirstandandi leik. Áður en að leikur hefst, þá á spilarinn sem situr beint til vinstri við hnappinn að leggja út blindfé fyrir „litla blind“ - fyrsta skylduboðið. Spilarinn sem er svo beint réttsælis við litla-blind póstar svo út „stóra blind“, en það er almennt tvisvar sinnum hærri upphæð en á litla-blind, en blindféð getur svo verið misjafnt eftir því um hverskonar bita (e. stakes) og spilað og hver uppbygging boða (e. betting structure) er í spilinu.

Í leikjum með föstu takmarki (e. Fixed Limit) er stóri blindur jafn hár og lítið boð og litli blindur er yfirleitt helmingurinn af upphæð stóra-blinds, en gæti verið hærri í einhverjum bitum. Til dæmis, í leik sem er $2/$4 Fixed Limit, er litli-blindur $1 og stóri-blindur $2. Í leik sem er $15/$30 Fixed Limit, er litli-blindur $10 og stóri-blindur $15.

Í Pot Limit og No Limit leikjum eru leikirnir nefndir eftir stærðum sem eru á blindum (t.d. $1/$2 leikur er með $1 fyrir litla-blind og $2 fyrir stóra-blind).

Nú fær hver spilari sín fimm holuspil og fyrsta spilið á floppinu er sett í borð og það snýr upp. Boð/sögn gengur réttsælis um borðið, byrjað á spilaranum „við hlaupið“ (strax réttsælis við stóra blind).

Fyrir flopp (pre-flop)

Eftir að hafa skoðað holuspilin sín og fyrsta spilið á floppinu, á hver spilari möguleika á að spila höndina með því að jafna (e. call) eða hækka (e. raise) boð stóra blinds. Sögnin (e. action) byrjar til vinstri við stóra blind, sem er talinn hafa úti lifandi boð í þessari lotu. Spilarinn á þá val um að pakka, jafna eða hækka. Til dæmis, ef stóri blindur var $2 myndi kosta $2 að jafna og a.m.k. $4 að hækka. Sögnin heldur svo áfram að ganga réttsælis um borðið.

Athugið: Uppbygging boða (e. betting structure) er mismunandi í ólíkum útgáfum af leiknum. Útskýringar á boðum (e. betting action) í Limit Courchevel, No Limit Courchevel og Pot Limit Courchevel má finna fyrir neðan.
Boð halda áfram í hverri boðlotu þar til allir virkir spilarar (sem hafa ekki pakkað (e. folded)) hafa lagt út jafnhátt boð í pottinn.

Floppið (e. The Flop)

Eftir að fyrstu boðlotu er lokið eru seinni tvö spilin úr floppinu gefin upp í loft í borð. Floppið er fyrstu þrjú sameignarspilin sem standa öllum spilurunum, sem enn eru með, til boða. Boðin byrja á fyrsta virka spilara strax réttsælis frá hnappnum. Önnur boðlota fer þá í gang. Í Limit Courchevel þá eru öll boð og hækkanir á floppinu í hlutföllum við litla boðið (e. small bet - t.d. $2 í leik sem er $2/$4).

Fléttan (e. The Turn)

Þegar boðlotunni er lokið fyrir floppið er fléttuspilið gefið upp í borðið. Fléttan er fjórða sameignarspilið í Courchevel-leik. Leikurinn hefst svo á fyrsta virka spilara strax réttsælis frá hnappnum. Önnur boðlota fer þá í gang. Í Limit Courchevel þá eru öll boð og hækkanir á floppinu í hlutföllum við stóra boðið (e. big bet - t.d. $4 í leik sem er $2/$4).

Fljótið (e. The River)

Þegar boðlotunni er lokið fyrir fléttuna er fljótaspilið gefið upp í borðið. Fljótið er fimmta og síðasta sameignarspilið í Courchevel leik. Boðin byrja á fyrsta virka spilara strax réttsælis frá hnappnum. Síðasta boðlotan fer þá fram.

Hólmurinn (e. Showdown)

Ef það eru fleiri en einn spilari eftir þegar síðustu boðlotunni er lokið á sá sem bauð eða hækkaði síðast að sýna spilin, nema ekkert hafi verið boðið í síðustu lotunni. Ef það gerist á spilarinn sem er fyrstur til vinstri frá hnappnum að sýna spilin sín fyrst. Spilarinn með bestu fimm spila höndina vinnur pottinn. Mundu, í Courchevel leikjum þurfa spilarar að nota tvö (og aðeins tvö) af sínum fimm holuspilum ásamt nákvæmlega þrjú af sameignarspilunum í borði. Ef það gerist að hendur séu jafn sterkar verður pottinum skipt jafnt á milli þeirra spilara sem eru með jafnbestu höndina. 
Eftir að potturinn hefur verið veittur sigurvegaranum er hægt að byrja að spila næsta leik af Courchevel. Hnappurinn færist nú réttsælis á næsta spilara.

Ef þú hefur gaman af því að spila mótapóker býður PokerStars líka upp á mót í Courchevel.

Fixed Limit, Pot Limit, og No Limit Courchevel

Reglur í Courchevel eru þær sömu í Limit, Pot Limit og No Limit pókerleikjum, nema með örfáum undantekningum:

  • Limit Courchevel

    Boð (e. betting) í Limit Courchevel fara fram eftir fyrir fram ákveðininni uppbyggingu á upphæðum. Fyrir floppið og á floppinu eru öll boð og hækkanir sama upphæð og stóri blindur. Á fléttunni og fljótinu (e. turn & river) eru upphæðir á öllum boðum og hækkunum tvöfaldar. Í Limit Courchevel má hver spilari bjóða allt að fjórum sinnum í hverri boðlotu. Þar með talin eru (1) boð, (2) hækkun, (3) endurhækkun, (4) þak (e. cap - lokahækkun).
  • Pot Limit Courchevel

    Lágmarksboð í Pot Limit Courchevel er sama upphæð og stóri blindur, en spilarar mega alltaf bjóða upp að stærðinni á pottinum.

    Lágmarkshækkun: Upphæðin sem hækkað er um verður að vera að minnsta kosti sú sama og áður var boðin í sömu lotu. Sem dæmi, ef fyrsti spilari sem gerir býður $5 verður sá næsti að hækka að lágmarki um $5 (heildarboðið hans er þá $10).

    Hámarkshækkun: Stærðin á pottinum, sem er skilgreindur sem samtals það sem er komið út í pottinn ásamt þeim boðum sem eru komin út á borðið, ásamt þeirri upphæð sem spilarinn sem er að gera þarf að jafna í pottinn áður en hækkunin er talin.

    Dæmi: Ef potturinn er $100 og ekkert hefur verið gert á undan í lotunni er hámarksboð spilarans sem er að gera $100. Eftir það boð færist sögnin á næsta spilara réttsælis. Sá spilari getur þá annað hvort pakkað, jafnað $100 eða hækkað um hvaða upphæð sem er á milli lágmarksins ($100 í viðbót) og hámarksins. Hámarksboðið í þessu tilviki væri þá $400 - sá sem er að hækka væri fyrst að jafna $100, sem gerir pottinn þá $300 og svo að hækka um $300, sem gerir heildarboðið $400.

    í Pot Limit Courchevel er ekkert „þak“ (e. cap) á fjölda leyfðra hækkana.
  • No Limit Courchevel

    Lágmarksboð í No Limit Courchevel er sama upphæð og stóri blindur, en spilarar mega alltaf bjóða eins mikið og þeir vilja, eða upp að öllum spilapeningunum sem þeir eiga.

    Lágmarkshækkun: Í No Limit Courchevel verður upphæðin sem hækkað er um að vera að minnsta kosti sú sama og áður var boðin í sömu lotu. Sem dæmi, ef fyrsti spilari sem gerir býður $5 verður sá næsti að hækka að lágmarki um $5 (heildarboðið hans er þá $10).

    Hámarkshækkun: Stærð staflans þíns (spilapeningarnir þínir á borðinu).

    Í No Limit Courchevel er ekkert „þak“ (e. cap) á fjölda leyfðra hækkana.

Í hugbúnaði PokerStars er ekki hægt að bjóða minna en lágmarkið, eða meira en hámarkið, hverju sinni. Boðstikan (e. bet slider) og boðglugginn leyfa þér bara að bjóða upphæðir sem eru leyfðar innan takmarka sem gilda í leiknum.

Lærðu ókeypis að spila Courchevel

Ef þú þekkir ekki Courchevel þá mælum við með því að þú prófir leikinn ókeypis fyrst, til að fá tilfinningu fyrir því hvernig leikurinn spilast. Þér er alltaf velkomið að spila á ókeypis pókerborðunum á PokerStars, svo þú getir fínpússað hæfileikana áður en þú byrjar að spila raunpeningapóker.

Að lokum, ef þú vilt spila einhverjar aðrar útgáfur af Omaha-leikjum mælum við með því að þú kíkir á 5 Card Omaha eða Omaha. Báðir leikirnir eru skemmtileg tilbreyting við hinn sívinsæla Texas Hold’em leik og þeir eru báðir í boði undir hlutanum um pókermót hjá okkur.

Til viðbótar við Courchevel bjóðum við líka upp á mörg önnur pókerafbrigði. Skoðaðu síðuna okkar um pókerleiki til að kynna þér málið.