pokercasinosports
pokercasinosports

Seven Card Stud

Seven Card Stud er sígildur pókerleikur sem getur tekið alla ævina að ná tökum á. Í Seven Card Stud fá spilarar gefin sjö spil hver á meðan höndinni stendur, en aðeins besta fimm spila höndin sem hver spilari getur myndað er notuð til að skera úr um sigurvegarann. Skoða röðun pókerhanda fyrir Seven Card Stud.

Ólíkt því sem gildir í Texas Hold’em og Omaha, er Seven Card Stud vanalega spilaður með Limit (takmarki) uppbyggingu á boðum, þar sem boð fara fram í föstum upphæðum. Til dæmis, í $2/$4 takmarksleik eru boðin á boðbilinu $2 í fyrstu tveim boðlotunum (e. betting rounds) og eru svo $4 í næstu þremur boðlotum. PokerStars býður ekki upp á Pot Limit eða No Limit Stud leiki eins og er.

Spilareglur í Seven Card Stud

Ante

Áður en leikur af Seven Card Stud hefst leggja allir spilarar fyrst út smáupphæð (e. ante - nákvæm upphæð veltur á leiknum og er tiltekin í titilspjaldi borðsins). Þetta er gjaldið fyrir að fá gefin spil inn í höndina. Til dæmis er forféð $0,15 í $1/$2 leik.

Third Street - Þriðja stræti

Hver spilari fær fyrst gefin þrjú spil, tvo falin holuspil og eitt sem snýr upp. Spilarinn með lægsta sjáanlega spilið er „smalinn“ (e. bring-in) og þarf hann þá að hefja sögn. Hann þarf þá að byrja á að leggja út annað lágmarksboð (aftur, nákvæm stærð smalans veltur á leiknum) eða, ef hann kýs svo, að leggja út fullt boð sem jafngildir lægri boðeiningunni (e. betting increment). Sögnin gengur svo réttsælis um borðið þar til boðum er lokið í þeirri umferð.

Fourth Street - Fjórða stræti

Hver spilari fær nú annað spil sem er gefið upp í loft og kallast það fjórða stræti. Fyrsti spilarinn sem á að gera er sá sem hefur sýnileg spil sem sýna hæstu pókerhöndina. Til dæmis, spilari sem sýnir kóngapar myndi gera fyrst, ef enginn annar spilari er með sjáanlegt ásapar eða betra. Þessi spilari má þá annað hvort skoða eða bjóða neðri boðupphæðina (s.s. $2 í leik sem er $2/$4). Vinsamlegast skoðið „Aðrar reglur og uppákomur í Stud“ hlutann hér fyrir neðan til að skoða undantekningar á þessari reglu.

Þá gengur boðlota hringinn.

Fifth Street - Fimmta stræti

Hver spilari fær nú annað spil sem er gefið upp í loft og kallast það fimmta stræti. Aftur, þá er fyrsti spilarinn sem á að gera sá sem hefur sýnileg spil sem sýna hæstu pókerhöndina. Þá gengur boðlota hringinn.

Frá fimmta stræti og þar til höndin klárast, miðast öll boð og hækkanir við hærri boðeininguna (s.s. $4 í $2/$4 leik).

Sixth Street - Sjötta stræti

Hver spilari fær nú annað spil sem er gefið upp í loft og kallast það sjötta stræti. Aftur, þá er fyrsti spilarinn sem á að gera sá sem hefur sýnileg spil sem sýna hæstu pókerhöndina. Þá gengur boðlota hringinn.

Seventh Street - Sjöunda stræti, eða fljótið (e. River)

Hver spilari fær nú sjöunda og síðasta spilið, sem er gefið á grúfu og aðeins sýnilegt spilaranum sem fær það gefið. Fyrsti spilarinn sem á að gera er sá sem hefur sýnileg spil sem sýna hæstu pókerhöndina. Þá gengur síðasta boðlotan hringinn og ef fleiri en einn spilari er eftir er komið að hólminum (e. Showdown)

Hólmurinn (e. Showdown)

Ef fleiri en einn spilari er enn með þegar lokaboðlotan er búin skal sá sem síðast bauð eða hækkaði sýna spilin sín fyrst. Ef það var ekkert boð í lokaumferðinni skal spilarinn í fremsta sætinu sýna sín spil fyrst (sæti 1, svo sæti 2 o.s.frv.). Aðrar hendur sem koma við sögu á hólminum eru sýndar réttsælis um borðið.

Spilarinn með bestu fimm spila pókerhöndina vinnur pottinn. Ef það gerist að hendur séu jafn sterkar verður pottinum skipt jafnt á milli þeirra spilara sem eru með jafnbestu höndina.

Eftir að potturinn hefur verið veittur er hægt að byrja að spila næsta leik af Seven Card Stud póker.

Boðmöguleikar spilara

Í Stud, eins og í öðrum tegundum pókers, eru mögulegar sagnir spilara að pakka (e. fold), skoða (e. check), bjóða (e. bet), kalla/jafna (e. call), eða hækka (e. raise). Möguleikarnir sem eru í boði hverju sinni ráðast af því hvað spilararnir á undan hafa gert. Ef enginn hefur enn boðið, getur spilari annað hvort skoðað (afþakkað að bjóða, en haldið spilunum) eða boðið. Ef spilari hefur boðið geta spilarar sem gera á eftir pakkað, jafnað eða hækkað. Að jafna (að sjá að jöfnu, kalla) er þegar spilari setur út jafnháa upphæð og spilari á undan hefur boðið. Að hækka er ekki aðeins að jafna fyrra boð, heldur að hækka það líka. Boð og hækkanir í Limit-leikjum (leikir m. takmarki) fara eftir fyrir fram ákvörðuðum upphæðum.

Aðrar reglur og uppákomur í Stud

  • Til að ákvarða um smalann (e. bring-in) í Seven Card Stud er jafnháum spilum raðað eftir lit. Liturinn raðast í stafrófsröð (enskri) – lauf (e. clubs - lægst), tígull (e. diamonds), hjarta (e. hearts) og spaði (e. spades - hæst). Lægsta sortin ræður úrslitum sé jafnt, svo ef hjarta tvistur og laufa tvistur eru sjáanleg í upphafi handar er það laufa tvistur sem væri smalinn. (Athugið: Röðun jafnra handa á hólminum (e. Showdown) ræðst ekki ef þessari reglu).
  • Ef spilari með lægstu sjáanlega spilið á þriðja stræti er með allt inni upp á forféð (e. ante) og hann getur því ekki lagt út fyrir smalaboðinu (e. bring-in bet) færist smalinn réttsælis á næsta spilara við borðið, óháð gildi spilsins sem sem spilari er með sýnilegt.
  • Á fjórða stræti, ef einhver spilari sýnir par, má opna boð eða hækka um eitt hátt boð (t.d. $4 í $2/$4 leik). Eftir að einhver hefur boðið hátt boð í þessum aðstæðum heldur boðupphæðin fyrir hátt boð áfram að gilda á meðan boðlotan á fjórða stræti stendur yfir.
  • Vegna þess að Stud-leikir eru spilaðir með átta spilurum en það eru aðeins 52 spil í stokknum, getur það gerst að spilin klárist áður en hægt er að gefa í sjöunda stræti. Í þeirri sjaldgæfu uppákomu væri stakt sameignarspil (e. community card) gefið upp í loft á borðið sem allir spilararnir sem eftir væru myndu deila með sér.

Önnur afbrigði af Stud

Afbrigði af Seven Card Stud sem kallast Seven Card Stud Hi/Lo (einnig þekkt sem Stud Eight or Better eða Stud/8) er einnig í boði í pókersal PokerStars. Í þessu afbrigði af Stud eru tveir mögulegir sigurvegarar í hverri hönd, einn sá sem er með bestu háhöndina og annar sem er með bestu lághöndina, að því gefnu að hún falli undir skilyrðinguna um átta lág eða betra.

PokerStars býður líka upp á Razz. Í þessu afbrigði af Stud er allir potturinn gefinn fyrir bestu lághöndina, án skilyrðingar.

Lærðu að spila Seven Card Stud ókeypis

Ef þú hefur aldrei spilað Seven Card Stud áður bjóðum við þér að endilega prófa á einu af ókeypis pókerborðunum okkar. Þú getur sótt hugbúnaðinn okkar ókeypis og stofnað leikpeningareikning til að æfa þig. Við bjóðum líka upp á Seven Card Stud pókermót.

Til viðbótar við Stud bjóðum við líka upp á mörg önnur pókerafbrigði. Skoðaðu síðuna okkar um pókerleiki til að kynna þér málið.