Ímyndaðu þér að eiga þinn eigin pókerklúbb á netinu, sem er bara fyrir þig og vinina - þar sem þú getur stillt upp einkaleikjunum þínum í póker hvenær sem þú vilt. Þetta heitir Home Games. Og það er ókeypis og mjög einfalt að setja upp.
Póker er samfélag. Þess vegna bjóða pókerklúbbar Home Games upp á auðvelda leið til samveru þar sem spilarar á netinu fá tilfinninguna sem fylgir lifandi póker, hvar svo sem þeir eru.
Og þökk sé vídeópspjalli geturðu notið félagslegu hliða pókersins á meðan þú lætur reyna á pókerfés félaganna.
Sæktu pókerhugbúnaðinn og fylgdu svo þessum einföldu þrepum til að byrja:
1) Í aðalanddyrinu, veldu þá „More“ og svo „Home Games“. Ef þér hefur verið boðið að ganga í klúbb, smelltu þá á „Join a Poker Club“; til að byrja með nýjan klúbb, smelltu þá á „Create a Poker Club“.
2) Gefðu nýja klúbbnum þínum nafn og boðskóða (passaðu að láta ekki persónulega lykilorðið þitt fara með!). Við sendum þér tölvupóst með upplýsingum um klúbbinn þinn og auðkennisnúmer, sem þú getur svo deilt með vinum þínum svo þeir geti gengið í klúbbinn.
3) Klúbbnum þínum verður bætt við í anddyri Home Games í biðlaranum þínum. Smelltu á „Club Lobby“-hnappinn. Þú getur nú samþykkt nýja klúbbmeðlimi,sett á dagskrá og skráð þig í leiki og stjórnað klúbbnum þínum úr anddyri klúbbsins (e. Club Lobby).
Einkapókerklúbburinn þinn á netinu er alveg ókeypis og inniheldur eftirfarandi lykileiginleika:
Klúbbsnafnið þitt verður að vera einstakt og ætti að vera á bilinu 8-30 stafabil, að meðtöldum eyðubilum. Það má ekki vera móðgandi, brjóta á réttindum einhvers eða innihalda vefslóð eða notandanafn einhvers annars (hann má innihalda þitt eigið notandanafn, en það er ekki nauðsynlegt). Klúbbsnöfn verða skoðuð og verða ekki sýnd öðrum spilurum fyrr en eftir að þau hafa verið samþykkt, en eftir það er ekki hægt að breyta þeim. Þú færð tölvupóst sem samþykkir eða hafnar klúbbsnafninu innan fimm daga.
Þegar þú býrð til boðskóða (e. Invitation Code) fyrir klúbbinn þinn þarftu að muna að hann verður að vera 8-16 stafabil, hann gerir greinarmun á há- og lágstöfum, hann má ekki innihalda notandanafnið þitt og hann verður að byrja á bókstaf og innihalda a.m.k. einn tölustaf. Einnig má hann ekki byrja á stöfunum „tmp“.
Í pókerklúbbum getur verið allt að 501 meðlimur - ef þú þarft að hækka þetta takmark skaltu kíkja í Hjálparmiðstöðina okkar til að finna bestu leiðina til að hafa samband við okkur. Þú getur stofnað allt að tvo klúbba og gengið í allt að 10. Til að sjá alla klúbbana sem þú tilheyrir smellir þú á „My Poker Clubs“ í Home Games-flipanum í anddyrinu.
Bæði klúbbstjórinn (e. Club Manager) og klúbbstýrendur (e. Club Administrators) geta sett mót á dagskrá og stofnað leiki, en aðeins klúbbstjórinn getur stjórnað klúbbnum. Notaðu hnappinn „Grant Admin“ í „Manage Club“-flipanum til að gefa spilurum stýrendahlutverk í klúbbnum.
Þegar þú spilar fyrir raunverulega peninga í Home Games þénarðu fríðindapunkta (e. rewards points) alveg eins og þú myndir gera í öðrum raunpeningaleikjum.
Home Games snýst um að spila póker með fólki sem þú þekkir og treystir og þess vegna geta meðlimir pókerklúbbs spilað á sama borði eða móti í Home Games jafnvel þó þeir séu með sömu IP-tölu eða staðsetningu. Einnig er spjallið almennt ekki vaktað. Hins vegar tökum við öryggi leikja í Home Games alveg jafn alvarlega og í öðrum leikjum - ef þú hefur grunsemdir um hegðun sem ekki er við hæfi hjá öðrum meðlimum klúbbsins skaltu vinsamlegast kíkja í Hjálparmiðstöðina okkar og við rannsökum málið.
Smelltu hér til að lesa skilmálana okkar fyrir Home Games.