Heldurðu að þú búir yfir því sem þarf til að slá andstæðinginn út og sanna að þú sért konungur pókerhringsins? Skráðu þig í Knockout pókermót til að taka slaginn um peningaverðlaun..
Í mótum í Knockout-póker er fé sett til höfuðs hverjum spilara sem skráir sig. Í hvert sinn sem þú slærð einhvern út vinnurðu peningaverðlaun.
Mót í Knockout-póker eru sérstök MTT (fjölborðamót) og Sit & Go-mót þar sem verðlaunafénu er skipt, en hluti þeirra fer í aðalverðlaunapottinn og hinum hlutanum er skipt á milli spilaranna fyrir hvern mótspilara sem þeir slá úr leik.
Ólíkt því sem gerist í hefðbundnum fjölborða- og Sit & Go-mótum þarftu ekki að enda í peningasæti til að fá peningaverðlaun. Þú getur bætt inn á bankabókina í hvert sinn sem þú slærð mótspilara út á meðan mót í Knockout-póker stendur yfir.
Þú finnur fjölmikið úrval leikja í Knockout-póker í flipanum Sit & Go og Tourney / Tournament (allt eftir því hvaða leikjaumhverfi (e. platform) þú ert að nota). Þegar þú ert klár í slaginn smellirðu á „Register“ og byrjar að slá mótspilarana úr leik.
Þegar þú hefur valið þér innkaup og tegund leiks sem þig langar að spila færðu sæti við mótaborð.
Um leið og þú slærð spilara úr leik (einn eða fleiri) færðu tilkynningu á borðinu sem segir hversu marga spilara þú slóst út og hversu mikið þú vannst í peningaverðlaun.
Knockout pókermót eru í boði með ýmis konar fyrirkomulagi, þar á meðal í Turbo, Hyper-Turbo og Regular-útgáfum.