Allir spilarar lenda í aðstæðum með allt inni á einhverjum tímapunkti, þar sem allir spilapeningarnir þeirra eru í húfi og engin leið til að hafa lengur áhrif á höndina.
Þegar sameignarspil eiga enn eftir að koma þá verða meira að segja þeir sem eru með líkurnar sér í hag stundum óheppnir og tapa höndinni.
Allt inn útborgun (e. All-in Cash Out) er eiginleiki sem gefur spilurum sem eiga rétt á því og eru með allt inni möguleikann á að sækja virði handarinnar sinnar án þess að þurfa að spila höndina til loka.
Þegar aðstæður þar sem allt er inni (e. all-in) eiga sér stað í peningaleik og hendur spilaranna eru sýndar (fyrir fljótaspilið (e. river) og engin sögn er eftir) þá reiknum við líkurnar á að hver hönd vinni pottinn og úthlutum útborgunarvirði á hverja hönd miðað við þessar líkur.
Spilarar sem eru í pottinum þar sem allt er inni fá þá möguleika á að fá höndina sína útborgaða og fá þá peningaupphæðina áhættulaust. Ef þeir hafna boðinu halda þeir áfram að keppa um allan pottinn (og alla hliðarpotta sem þeir eiga hlut í) eins og vanalega.
Eftir að spilari velur að fá útborgað á hann ekki lengur möguleika á að keppa um neinn hluta pottins og mun fá upphæðina sem var boðin strax í staflann sinn.
Spilarar sem ákveða að hafna tilboðinu um útborgun munu enn þurfa að ná bestu höndinni á hólminum (e. showdown) til að vinna pottinn, jafnvel þó allir mótspilararnir þeirra hafi fengið útborgað.
Peningavirði boðinnar útborgunar er reiknuð samkvæmt eftirfarandi formúlu:
Virði handar = (pottstærð - tekja) x líkur á sigri
Við leggjum 2% útborgunargjald á virði handarinnar þinnar (ekki á allan pottinn), sem er dregið frá áður en þér er boðin úttektarupphæðin.
Þú getur frávalið „All-in Cash Out“ eiginleikann að fullu í gegnum „Settings“ valseðilinn.
Dæmi
Leikur: 0,5/1 No Limit Hold’em
Pottur: 100 (tekja (e. rake) 2,5)
Fyrir flopp, Spilari 1 er með ásapar og 81.95% líkur á sigri, en Spilari 2 er með kóngapar og 18.05% líkur á sigri.
Útborgunarvirði Spilara 1 er þá: (100 - 2,5) x 81,95% x 98% = 78,30
Útborgun Spilara 2 verður þá: (100 - 2,5) x 18,05% x 98% = 17,25
Allt inn útborgun er í boði í No Limit Hold’em, Pot Limit Omaha og 6+ No Limit Hold’em (þar sem það er í boði), bæði á hringleiksborðum í leikpeningaleikjum og raunpeningaleikjum. Allt inn útborgun er í boði í öllum upphæðum/bitastærðum (e. stakes).
Allt inn útborgun er ekki í boði þegar útborgunarvirðið er minna en $0,01/€0,01.