Veiðin er byrjuð. Nú færðu tækifæri til að vinna allt að $5.000 í peningum á hverjum degi með því að spila Omaha-póker.
Stökktu á bak og taktu hnakktöskuna með þér dagana 19. september til 24. nóvember.
Svona virkar þetta:
Það er verið að gefa spilin; verður þú með í hasarnum?
Hvað er í boði
Omaha Card Hunt er röð af daglegum áskorunum, sem eru settar upp sem sex öráskoranir. Spilarar sem taka þátt í Omaha Card Hunt á meðan tilboðstímabilið stendur yfir, eins og það er skilgreint hér fyrir neðan, geta unnið peningaverðlaun af handahófi sem eru allt að $5.000 þegar þeir hafa lokið hverri daglegri áskorun.
Hvenær fer tilboðið fram
Þetta tilboð er í gangi daglega frá 00:00 ET (bandarískur austurstrandartími) 19. september til 23:59 ET 24. nóvember 2024. Hvert daglegt tilboðstímabil hefst kl. 00:00 ET og því lýkur kl. 23:59 ET með þeirri undantekningu að fyrsti dagurinn hefst kl. 03:00 ET og lýkur kl. 23:59 ET.
Hver á rétt á að taka þátt og hvernig getur þú tryggt þér þátttökurétt
Tilboðið er aðeins í boði fyrir útvalda spilara. Til að taka þátt í tilboðinu og láta mæla árangurinn/framganginn sinn verða spilarar að staðfesta þátttöku í gegnum áskoranagluggann (e. Challenges Window) og svo ljúka daglegum áskorunum.
Hver dagleg áskorun samanstendur af sex öráskorunum, eins og þær koma fram í áskoranaglugganum og þeim er hægt að ljúka samtímis og í hvaða röð sem er.
Aðeins þarf að staðfesta þátttöku einu sinni í upphafi á meðan tilboðið er í gangi. Hendur sem eru spilaðar áður en þátttaka er staðfest munu ekki teljast með. Spilarar geta lokið hverju setti af daglegum áskorunum einu sinni á dag.
Veðmálsskilyrði og takmarkanir eftir leikjategundum
Áskorunum er aðeins hægt að ljúka með því að spila í öllum peningaleikjum í Omaha fyrir raunpeninga (e. real money Omaha cash games) þar sem að lágmarki þrír spilarar fá gefin spil í hönd að frátöldum Omaha Hi/Lo, 5 Card Omaha og 6 Card Omaha. Önnur leikafbrigði, hendur spilaðar á leikpeningaborðum eða mót teljast ekki með.
Aðeins vinningshendur, fyrir eða eftir flopp, teljast með upp í að ljúka daglegri áskorun. Ef þarf að skipta pottinum (e. split pot) telst hönd aðeins hafa unnið ef spilari lýkur höndinni með meiri peninga en hann átti í upphafi handarinnar sem um ræðir.
Allar upplýsingar um innkaupsþrep og veðmálsskilyrði fyrir hverja daglega áskorun má finna í áskoranaglugganum.
Tilboðið sótt og notað
Eftir að hafa lokið hverri daglegri áskorun fá spilarar peningaverðlaun af handahófi. Allar upplýsingar um hvaða peningaverðlaun eru í boði má finna í áskoranaglugganum.
Öll verðlaun verða millifærð í kistu (e. Chest). Spilarar þurfa að opna kistuna til að sækja vinningana sína.
Peningaverðlaunum fylgja ekki nein veðmálsskilyrði og má nota í hvaða leik sem er, en þau er ekki hægt að millifæra eða framvísa.
Óopnaðar kistur renna út 30 dögum eftir að þær hafa verið millifærðar/lagðar inn á reikning spilara..
Hvað annað þarftu að vita
Spilarar geta fylgst með hvernig þeim gengur að ljúka áskoruninni í áskoranaglugganum sínum (e. Challenges Window).
Ekki er hægt að bæta við áskorunina. Öllum spilum sem hefur verið safnað en ekki tekst að ljúka áskorun með munu tapast eftir að daglega tilboðstímabilinu lýkur.
Kíktu hér til að læra meira um Omaha.
Sjá hér til að skoða almenna kynningarskilmála.