pokercasinosports
pokercasinosports

Fáðu verðlaunahlut í ríflega $200.000 í peningaverðlaunum og miða í New Year Series.

Nú er sýning. Leystu áskoranir til að koma höndum yfir aukaleg peningaverðlaun og miða í New Year Series. Allt sem þú þarft að gera er að kíkja á borðin.

Broadway-áskorunin verður á stóra sviðinu dagana 15. desember til 11. janúar.

Svona virkar þetta:

Staðfestu þátttöku í gegnum „áskoranagluggann“ þinn. Þú þarft aðeins að gera þetta einu sinni. Þú færð strax kistu sem opnar fyrir eitt spil á kortinu þínu.

Þénaðu 2,5 endurheimtarpunkta (e. redemtpion points) og þá færðu kistu sem opnar fyrir spil á kortinu þínu. Þú getur fengið allt að eitt spil á dag með því að ljúka þessari áskorun. Þú vinnur þér inn 5 endurheimtarpunkta fyrir hvern $1 sem þú greiðir í tekju (e. rake) eða gjöld í öllum mótum og peningaleikjum (e. cash games).

• Sýndu fernu (e. Four of a Kind - einn dálkur á kortinu þínu) og þá færðu kistu sem inniheldur $4 í peningum.

• Náðu konunglegri litaröð (e. Royal Flush - ein röð á kortinu þínu) og fáðu kistu með miðum í New Year Series, að andvirði annað hvort $2,20 eða $5,50.

• Kláraðu allt kortið og… rétt til getið. Þú færð þá aðra kistu sem inniheldur síðustu $10 peningaverðlaunin þín.

Sviðið er tilbúið. Hér færðu tækifæri til að ná þér í allt að 10 aukalega vinninga. Sýndu hvað þú getur og vertu með.

Skilmálar

Hvað er í boði

Broadway-áskorunin er kort sem skipt er upp í 20 spilahluta, sem er skipt í fimm raðir (konungleg litaröð (e. Royal Flush)) og fjóra dálka (ferna (e. Four of a Kind)).

Spilarar sem taka þátt í Broadway-áskoruninni á meðan tilboðstímabilið er í gangi, eins og það er skilgreint hér á eftir, geta unnið peningaverðlaun og mótamiða í New Year Series þegar þeir klára hverja röð á kortinu, hvern dálk á kortinu og svo að lokum fyrir allt Broadway-kortið. Verðlaun eru tilgreind hér fyrir neðan.

Hvenær fer tilboðið fram

Þetta tilboð stendur yfir frá 06:00 ET (bandarískur austurstrandartími) 15. desember til 23:59 ET 11. desember.

Hver á rétt á að taka þátt og hvernig getur þú tryggt þér þátttökurétt

Tilboðið er aðeins í boði fyrir spilara sem fá boð um þátttöku. Til að taka þátt í tilboðinu og láta mæla árangurinn sinn verða spilarar að staðfesta þátttöku (e. opt-in) í áskoranaglugganum sínum (e. Challenges Window) og svo safna spilum með því að ljúka smááskorunum, eins og þær eru tilgreindar í áskoranaglugganum. Til að klára smááskoranir verða spilarar að safna spilum sem eru ígildi spila á kortinu og teljast með upp í að mynda pókerhönd, það er, að klára dálk á kortinu (fernu) eða röð á kortinu (konunglega litaröð).

Spilarar hafa til 11. janúar til að safna þeim spilum sem þarf til að ljúka við öll 20 spilin í Broadway-áskoruninni.

Veðmálsskilyrði og takmarkanir eftir leikjategundum

Nánari upplýsingar um veðmálsskilyrði fyrir hverja smááskorun má finna í áskoranaglugganum.

Tilboðið sótt og notað

Spilarar fá verðlaun um leið og þeir klára hverja röð á kortinu, eða dálk og svo allt Broadway-kortið, eins og er tilgreint hér á eftir:

Lokið

Verðlaun

Virði

Líkur

Röð (konungleg litaröð)

Miði í New Year Series

$2,20

70%

Miði í New Year Series

$5,50

30%

Dálkur (ferna)

Peningur

$4,00

Allt kortið (20 spil)

Peningur

$10,00

Öll verðlaun verða millifærð í kistu (e. Chest). Spilarar þurfa að opna kistuna til að sækja vinningana sína.

Peningaverðlaunum fylgja ekki nein veðmálsskilyrði og má nota í hvaða leik sem er en þau er ekki hægt að millifæra eða framvísa.

Miða, sem vinnast í tengslum við þetta tilboð, er hægt að nota til að skrá sig í og spila New Year Series-mót með innkaupsupphæð sem samsvarar virði miðans. Miða má ekki millifæra og þeim er ekki hægt að skipta í peninga, T-Money (mótapening) eða aðra miða.

Mótamiðar renna sem vinnast falla úr gildi (e. expire) sjö dögum frá útgáfu. Þeir hafa ekkert verðgildi eftir að þeir renna út og verða ekki bættir.

Óopnaðar kistur renna út (e. expire) 7 dögum eftir að þær hafa verið millifærðar.

Hvað annað þarftu að vita

Spilarar geta fylgst með hvernig þeim gengur að ljúka áskoruninni í áskoranaglugganum sínum (e. Challenges Window).

Ekki er hægt að bæta við áskorunina. Spil sem vinnast inn sem duga samt ekki til að ljúka áskorun tapast að tilboðstímabilinu loknu.

Kíktu hér til að skoða almenna kynningarskilmála.