Takmörk á innlegg
Það að við gefum spilurum tólin til að setja takmörk á innleggin sín er eitt dæmi um það að við leggjum mikla áherslu á ábyrga spilun. Þú getur skoðað gildandi takmörk á innlegg fyrir hverja innleggsaðferð með því að smella á tilheyrandi aðferð í gjaldkeranum. Gjaldkerann er líka hægt að nota til að hækka innleggstakmörk, þar sem það er hægt.
Millifærslur spilara
Til að óska eftir millifærslu fjármuna af reikningnum þínum á reikning annars spilara í kerfinu okkar skaltu fara í gjaldkerann, velja Transfer to Player og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Millifærslur eru háðar hámarksupphæðum á millifærslur og ekki er hægt að taka út millifærða fjármuni án þess að þeir hafi verið notaðir til að spila leiki í kerfinu okkar. Millifærslur fjármuna milli ólíkra gjaldmiðla eru aðeins mögulegar ef báðir spilararnir (sendandi og móttakandi) eru með sömu gjaldmiðlareikningana uppsetta á Stars Account-reikningunum sínum.
Taktu eftir að innlagða fjármuni er ekki hægt að nota í millifærslum til spilara á fyrr en staðfestingartímabil (e. clearing period) fyrir þessa tilteknu aðferð er liðið.