Instant eChecks leyfir þér að gera öruggar og hraðar rafrænar millifærslur fjármuna (EFT) beint af bankareikningnum þínum yfir á spilarareikninginn þinn í gegnum rafrænan tékka (echeck). eChecks virka á sama máta og pappírstékkar. Þegar þú leggur inn með eChecks er beðið um upphæðina fyrir innlegginu þínu frá bankanum þínum alveg eins og þegar pappírstékki sem þú hefur skrifað undir er lagður inn. Eftir að heimild hefur verið veitt fyrir ávísuninni eru fjármunirnir millifærðir af bankareikningnum þínum inn á reikninginn þinn hjá okkur.
Fjármunir sem eru lagðir inn með Instant eChecks eru strax aðgengilegir á reikningnum þínum þó að fjármunirnir hafi ekki borist strax af bankareikningnum þínum.
Þar sem það getur tekið allt að 7 daga þar til við fáum fjármunina frá bankanum þínum er innleggið þitt merkt sem „ekki farið í gegn“ (e. uncleared status) hjá okkur í 7 daga eftir að þú leggur inn með Instant eChecks. Á meðan innleggið hefur ekki farið í gegn (e. uncleared), geturðu ekki tekið út eða óskað eftir að millifæra nema þú eigir innistæðu sem er hærri en heildarupphæð innleggsins sem gert var með Instant eChecks. Þann hluta innistæðunnar þinnar sem er umfram innleggin þín sem hafa enn ekki farið í gegn má nota eins og vanalega, þar á meðal til að taka út og millifæra.
Ef innlegg með Instant eChecks er ekki virt af bankanum þínum og er skilað sem ógreiddu munu aðrar hömlur verða settar á innleggin þín með Instant eChecks í framtíðinni eins og að fá ekki fjármunina þína strax og þess í stað aðeins fá fjármunina eftir að innleggið með Instant eChecks hefur farið í gegn. Ef innlegg með eCheck er ekki í boði fyrir þig til að spila með gæti verið að þú hafir fengið til baka áður og þess vegna er innleggið þitt aðeins tiltækt eftir 10 daga.
Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.
Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Cashier-hnappinn. Næst skaltu smella á Instant eChecks-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja Real Money-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella á Instant eChecks-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella á Instant eChecks-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Með því að smella á Submit á innleggskjánum samþykkir þú skilmálana sem gilda fyrir notkun á Instant eChecks. Instant eChecks-ávísunin þín er þá lögð inn í gegnum Instant eChecks-færslukerfið okkar.
Fast Deposit-valmöguleikinn er í boði fyrir innlegg með Instant eChecks. Fast Deposit er fljót og örugg leið fyrir þig til þess að leggja peninga inn á reikninginn þinn með þeirri aðferð sem þér hentar best.
Kynntu þér meira um hröð innlegg.
Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.
Þú mátt taka fjármuni út af Stars Account-reikningnum þínum inn á Instant eChecks-reikninginn þinn að því gefnu að þú hafir áður gert ein kaup með Instant eChecks undanfarna 12 mánuði.
Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir til að fá nánari upplýsingar.
Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga hjá okkur.
Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota Instant eChecks. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem Instant eChecks gæti lagt á þá.
Aftur á aðalsíðu raunpeninga.