pokercasinosports
pokercasinosports

Spilaðu fyrir raunverulega peninga með INSTADEBIT

INSTADEBIT

Hvað er INSTADEBIT?

INSTADEBIT er traust og örugg leið til að gera greiðslur á netinu með fjármunum á INSTADEBIT veskisreikningnum þínum.

  • Það er ókeypis að skrá sig
  • Þú getur skráð þig og byrjað að millifæra fjármuni á reikninginn þinn STRAX
  • Þú getur greitt beint af bankareikningnum þínum eða notað rauntímahleðslumöguleikana í þínu landi.
  • Söluaðilar hafa engan aðgang að persónuupplýsingunum þínum.
  • Þetta er einfalt í notkun.

Hvernig fjármagna ég INSTADEBIT-reikninginn minn?

Það eru margar leiðir til að fjármagna INSTADEBIT-reikninginn þinn. Smelltu hér til að kynna þér meira um fjármögnunarleiðir sem eru í boði.

Hvernig get ég lagt inn með INSTADEBIT?

Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.

Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Cashier-hnappinn. Næst skaltu smella á INSTADEBIT-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja Real Money-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella á INSTADEBIT-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella á INSTADEBIT-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Hver eru innleggstakmörkin fyrir INSTADEBIT?

Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.

Hvað með úttektirnar mínar?

Þú mátt taka fjármuni út af reikningnum þínum inn á INSTADEBIT-reikninginn þinn að því gefnu að þú hafir áður gert ein kaup með INSTADEBIT undanfarna 12 mánuði.

Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir til að fá nánari upplýsingar.

Hvernig virkar kerfið fyrir skiptigengi gjaldmiðla?

Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga.

Hvað kostar það mig að nota INSTADEBIT?

Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota INSTADEBIT. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem INSTADEBIT gæti lagt á þá.