pokercasinosports
pokercasinosports

Spilaðu um raunpeninga með Luxon Pay

Luxon Pay

Hvað er Luxon Pay?

Luxon Pay er rafveski sem leyfir þér að gera örugg netkaup hjá mörgum söluaðilum á netinu. Eftir að þú opnar Luxon Pay-reikninginn þinn geturðu lagt inn, tekið út og millifært fjármuni til margra kaupmanna/söluaðila sem taka við netgreiðslum frá Luxon Pay. Skoðaðu heimasíðu Luxon Pay til að skrá þig fyrir ókeypis reikningi sem er tengdur við tölvupóstfangið þitt.

Við leyfum aðeins einn Luxon Pay-reikning á hvern viðskiptavin.

Hvernig get ég fjármagnað Luxon Pay-reikninginn minn?

Það eru fjölmargar leiðir sem þú getur farið til að fjármagna Luxon Pay-reikninginn þinn. Smelltu hér til að kynna þér meira um fjármögnunarleiðir sem eru í boði.

Hvernig get ég gert innlegg með Luxon Pay?

Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.

Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Cashier“-hnappinn. Næst smellirðu á „Luxon Pay“-hnappinn og fylgir svo leiðbeiningunum á skjánum.

App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja „Real Money“-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á „Deposit“-hnappinn. Næst ýtirðu á „Luxon Pay“-hnappinn og fylgir leiðbeiningunum á skjánum.

Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Deposit“-hnappinn. Næst smellirðu á „Luxon Pay“-hnappinn og fylgir svo leiðbeiningunum á skjánum.

Get ég notað „Hröð innlegg“ (e. „Fast Deposit“) með Luxon Pay?

Eiginleikinn „Hröð innlegg“ er í boði fyrir innlegg með Luxon Pay. „Fast Deposit“ er fljót og örugg leið fyrir þig til þess að leggja peninga inn á reikninginn þinn með þeirri aðferð sem þér hentar best.

Kynntu þér meira um hröð innlegg.

Hver eru innleggstakmörkin fyrir Luxon Pay?

Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.

Hvað með úttektirnar mínar?

Þú getur tekið út fjármuni af Stars Account-reikningnum þínum inn á Luxon Pay-reikninginn þinn.

Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir til að fá nánari upplýsingar.

Hvernig virkar kerfið fyrir skiptigengi gjaldmiðla?

Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga hjá okkur.

Hvað kostar það mig að nota Luxon Pay?

Við rukkum engin gjöld fyrir að nota Luxon Pay. Spilarar bera ábyrgð á gjöldum sem Luxon Pay gæti lagt á þá.

Aftur á aðalsíðu raunpeninga.