pokercasinosports
pokercasinosports

Spilaðu fyrir raunverulega peninga með Skrill

Skrill

Hvað er Skrill?

Skrill er alþjóðlegt rafveski sem þú getur haldið í staðargjaldmiðlinum þínum og fjármagnað með því að millifæra fjármuni af bankareikningnum þínum, með ávísun, debet-/kreditkortum eða með öðrum greiðsluleiðum sem eru í boði í þínu landi. Þú getur notað Skrill fyrir örugg kaup á netinu án þess að þurfa hafa áhyggjur af því að gefa upp greiðslukortaupplýsingarnar þínar.

Í sumum löndum leyfir Skrill þér líka að millifæra fjármuni beint af bankareikningnum þínum eða debet/kreditkortinu þínu inn á Stars Account aðganginn þinn án þess af hafa áður þurft að setja fjármunina á Skrill-reikninginn þinn. Möguleikar fyrir beina fjármögnum í boði eru:

Instant BankingKreditkortDebetkort
giropay (Þýskaland) Mastercard Visa Delta og Electron
Sofortüberweisung (Þýskaland) Visa Maestro (Austurríki, Spánn, Bretland)
Nordea (Finnland og Svíþjóð) Diners Laser (Írland)
eNETS (Singapúr) JCB (Alþjóðlegt) CartaSi (Ítalía)
Netpay (Austurríki)   Postepay (Ítalía)
P24 (Pólland)   4B (Spánn)
POLi (Ástralía og Nýja-Sjáland)   EURO6000 (Spánn)
ePay (Búlgaría)   Dankort (Danmörk)

Hvernig fjármagna ég Skrill reikninginn minn?

Það eru margar leiðir til að fjármagna Skrill-reikninginn þinn. Smelltu hér til að kynna þér meira um fjármögnunarleiðir sem eru í boði.

Hvernig get ég lagt inn með Skrill?

Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.

Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Cashier-hnappinn. Næst skaltu smella Skrill-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja Real Money-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella Skrill-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella Skrill-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Get ég gert hröð innlegg (e. Fast Deposit) með Skrill?

Fast Deposit-valmöguleikinn (hröð innlegg) er í boði fyrir innlegg með Skrill. Fast Deposit er fljót og örugg leið fyrir þig til þess að leggja peninga inn á reikninginn þinn með þeirri aðferð sem þér hentar best.

Kynntu þér meira um hröð innlegg.

Hver eru innleggstakmörkin fyrir Skrill?

Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.

Hvað með úttektirnar mínar?

Þú mátt taka fjármuni út af Stars Account-reikningnum þínum inn á Skrill-reikninginn þinn að því gefnu að þú hafir áður gert ein kaup með Skrill-reikningnum þínum undanfarna 12 mánuði.

Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir til að fá nánari upplýsingar.

Hvernig virkar kerfið fyrir skiptigengi gjaldmiðla?

Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga.

Hvað kostar það mig að nota Skrill?

Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota Skrill. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem Skrill gæti lagt á þá.