pokercasinosports
pokercasinosports

Spilaðu fyrir raunverulega peninga með NETELLER

NETELLER

Hvað er NETELLER?

NETELLER er örugg síða þar sem þú getur opnað ókeypis reikning og svo millifært fjármuni af bankareikningnum þínum, kreditkorti eða með símgreiðslu.

Eftir að þú hefur opnað NETELLER-reikning geturðu lagt inn, rekið út og millifært fjármuni til fjölmargra kaupmanna sem taka við greiðslum af NETELLER á netinu. Farðu á heimasíðu NETELLER til að skrá þig fyrir ókeypis reikningi.

NETELLER býður upp á þægilega og mjög örugga skráningarleið á netinu og millifærslur og er með sólarhringsþjónustu í gegnum tölvupóst, lifandi spjall og síma. Smelltu hér til að kynna þér meira um NETELLER.

Hvernig fjármagna ég NETELLER-reikninginn minn?

Það eru margar leiðir til að fjármagna NETELLER-reikninginn þinn. Smelltu hér til að kynna þér meira um fjármögnunarleiðir sem eru í boði.

Hvernig get ég lagt inn með NETELLER?

Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.

Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Cashier“-hnappinn. Næst skaltu smella NETELLER-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja „Real Money“-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella NETELLER-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella NETELLER-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Get ég gert hröð innlegg (e. Fast Deposit) með NETELLER?

Fast Deposit-valmöguleikinn (hröð innlegg) er í boði fyrir innlegg með NETELLER. „Fast Deposit“ er fljót og örugg leið fyrir þig til þess að leggja peninga inn á reikninginn þinn með þeirri aðferð sem þér hentar best.

Kynntu þér meira um hröð innlegg.

Hver eru innleggstakmörkin fyrir NETELLER?

Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.

Hvað með úttektirnar mínar?

Þú mátt taka fjármuni út af Stars Account-reikningnum þínum inn á NETELLER-reikninginn þinn að því gefnu að þú hafir áður gert ein kaup með NETELLER-reikningnum þínum undanfarna 12 mánuði.

Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir til að fá nánari upplýsingar.

Hvernig virkar kerfið fyrir skiptigengi gjaldmiðla?

Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga.

Hvað kostar það mig að nota NETELLER?

Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota NETELLER. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem NETELLER gæti lagt á þá.

Aftur á aðalsíðu raunpeninga.