Rapid Transfer leyfir þér að framkvæma millifærslu í rauntíma úr bankanum þínum inn á Stars Account-reikninginn þinn.
Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.
Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Cashier“-hnappinn. Næst skaltu smella „Rapid Transfer“-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja „Real Money“-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella „Rapid Transfer“-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella á „Rapid Transfer“-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.
Þú mátt taka fjármuni út af Stars Account-reikningnum þínum inn á Rapid Transfer-reikninginn þinn að því gefnu að þú hafir áður gert a.m.k. eitt innlegg með Rapid Transfer undanfarna 12 mánuði. Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir fyrir nánari upplýsingar.
Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga.
Við tökum enga þóknun fyrir að nota Rapid Transfer. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem Rapid Transfer gæti lagt á þá.
Aftur á aðalsíðu raunpeninga.