PayPal er rafveski sem leyfir þér að gera örugg kaup á netinu hjá mörgum söluaðilum á netinu. Eftir að þú hefur opnað PayPal-reikning geturðu lagt inn, tekið út og millifært fjármuni til fjölmargra kaupmanna sem taka við greiðslum af PayPal á netinu. Farðu á heimasíðu PayPal til að skrá þig fyrir ókeypis reikningi sem er tengdur við tölvupóstfangið þitt.
Við leyfum aðeins einn PayPal-reikning á hvern viðskiptavin.
Það eru margar leiðir til að fjármagna PayPal-reikninginn þinn. Smelltu hér til að kynna þér meira um fjármögnunarleiðir sem eru í boði.
Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.
Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Cashier-hnappinn. Næst skaltu smella á PayPal-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja Real Money-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella á PayPal-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella á PayPal-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.
Þú mátt taka fjármuni út af Stars Account-reikningnum þínum inn á PayPal-reikninginn þinn að því gefnu að þú hafir áður gert ein kaup með PayPal-reikningnum þínum undanfarna 12 mánuði.
Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir til að fá nánari upplýsingar.
Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga.
Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota PayPal. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem PayPal gæti lagt á þá.