Skrill er alþjóðlegt rafveski sem þú getur haldið í staðargjaldmiðlinum þínum og fjármagnað með því að millifæra fjármuni af bankareikningnum þínum, með ávísun, debet-/kreditkortum eða með öðrum greiðsluleiðum sem eru í boði í þínu landi. Þú getur notað Skrill fyrir örugg kaup á netinu án þess að þurfa hafa áhyggjur af því að gefa upp greiðslukortaupplýsingarnar þínar.
Skrill 1-Tap er eiginleiki fyrir Skrill-veskið sem leyfir þér að greiða með einum smelli, svo þú getir eytt minni tíma í að borga og meiri tíma í að spila.
Þú velur bara Skrill 1-Tap sem innborgunaraðferð, slærð inn upphæðina sem þú vilt leggja inn og heldur svo áfram. Þú færist þá yfir á Skrill-reikninginn þinn þar sem þú getur fylgt leiðarvísinum á skjánum til að virkja 1-Tap greiðslur fyrir PokerStars.
Smelltu hér til að opna Skrill-reikning.
Það eru margar leiðir til að fjármagna Skrill-reikninginn þinn. Smelltu hér til að kynna þér meira um fjármögnunarleiðir sem eru í boði
Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.
Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Cashier“-hnappinn. Næst skaltu smella „Skril 1-Tap“ hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja „Real Money“-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella „Skrill 1-Tap“ hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella „Skril 1-Tap“ hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
„Fast Deposit“ valmöguleikinn (hröð innlegg) er í boði fyrir innlegg með Skrill 1-Tap. Fast Deposit er fljót og örugg leið fyrir þig til þess að leggja peninga inn á reikninginn þinn með þeirri aðferð sem þér hentar best.
Kynntu þér meira um hröð innlegg.
Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.
Þú mátt taka fjármuni út af Stars Account-reikningnum þínum inn á Skrill-reikninginn þinn að því gefnu að þú hafir áður gert ein kaup með Skrill-reikningnum þínum undanfarna 12 mánuði.
Kíktu vinsamlegast á reglur okkar um úttektir til að fá nánari upplýsingar.
Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga.
Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota Skrill 1-Tap. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem Skrill gæti lagt á þá.
Aftur á aðalsíðu raunpeninga.