pokercasinosports
pokercasinosports

Spilaðu fyrir raunverulega peninga með Transferência Bancária

Transferência Bancária

Hvað er Transferência Bancária

Transferência Bancária leyfir þér að millifæra fjármuni í staðargjaldmiðlinum þínum með eftirfarandi tveimur leiðum:

Boleto Bancário er vinsæl, einföld og örugg leið til að millifæra peninga í Brasilíu í staðargjaldmiðlinum þínum. Það virkar með strikamerktum greiðsluseðli sem er hægt að nota í öllum brasilískum bönkum. Til að ganga frá greiðslu sýnirðu bara bankanum þínum greiðsluseðilinn og fjármunina, áður en gildistíminn rennur út og hann framkvæmir þá greiðsluna. Athugaðu að þú getur líka notað heimabankann þinn til að greiða greiðsluseðilinn á einfaldan hátt. Greiðsluseðillinn þýðir að millifærsla peninganna verður auðveld og villulaus.

Bankamillifærsla (e. Bank Transfer) leyfir þér að millifæra fjármuni í staðargjaldmiðlinum þínum beint af bankareikningnum þínum. Þú gengur frá millifærslunni á netinu á heimasíðu bankans þíns og Stars Account-reikningurinn þinn uppfærist næstum samstundis.

Hvernig get ég lagt inn með Transferência Bancária?

Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.

Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Cashier“-hnappinn. Næst skaltu smella á „Transferência Bancária“-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja „Real Money“-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella á „Transferência Bancária“ hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á „Deposit“-hnappinn. Næst skaltu smella á „Transferência Bancária“ hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Hver eru innleggstakmörkin fyrir Transferência Bancária?

Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.

Hvað með úttektirnar mínar?

Úttektir með Transferência Bancária eru ekki studdar. Kíktu vinsamlegast á úttektarstefnuna okkar til að finna aðrar mögulegar leiðir til að taka út fjármunina þína.

Hvernig virkar kerfið fyrir skiptigengi gjaldmiðla?

Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga hjá okkur.

Hvað kostar það mig að nota Transferência Bancária?

Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota Transferência Bancária. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem bankar þeirra gætu lagt á þá.

Aftur á aðalsíðu raunpeninga.